Færsluflokkur: Spaugilegt

REGIN HNEYKSLI!!!!!!!

 

VONANDI ERU BLOGGARAR MÉR SAMMÁLA UM, AÐ ÞETTA ER ALGERT STÓR HNEYKSLI EF SATT REYNIST!!!!!

Tekið af AMX vefnum.

Smáfuglarnir heyra, að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sé ævareið yfir að hafa þurft að sæta venjulegri öryggisleit á leið sinni til útlanda um Leifsstöð á dögunum. Hafi hún krafist þess, að skrifstofa Alþingis taki málið upp við viðkomandi yfirvöld. Þingforseti eigi að sæta sérmeðferð í Leifsstöð.

Smáfuglunum er ekki kunnugt um, hvort öryggisreglur EES-svæðisins geri ráð fyrir því, að ekki sé leitað á þingforsetum eins og öðrum, áður en þeir fara í flugvélar. Spurning er, hvort óskað verði eftir sérlausn á þessu máli í aðildarviðræðunum við ESB.

Að smáfuglunum er hvíslað, að svo mikill hiti sé í þessu máli, að vandræðum valdi innan Samfylkingarinnar, en öryggisleit í Leifsstöð fellur undir Kristján Möller, samgönguráðherra, flokksbróður Ástu Ragnheiðar.

 Svo kom auðvitað frétt sem gerir það að verkum, að mér verður strax rórra.

Af sama vef.

 

Smáfuglarnir sögðu frá því 10. nóvember, að Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, hefði verið stórlega misboðið við öryggisleit í Leifsstöð. Hún teldi sig eiga að lúta öðrum reglum á ferðalögum en almenningur, enda bæri hún forsetatign Alþingis.

Nú hafa smáfuglarnir fregnað, að efnt verði til skyndifundar háttsettra embættismanna að ósk forsetaskrifstofu Alþingis í því skyni að knýja fram sérreglur fyrir Ástu Ragnheiði, fari hún að nýju um Leifsstöð með forsetatignina á herðunum.

Verði ekki unnt að smíða þessar sérreglur er tvennt til í stöðunni: Ásta Ragnheiður hætti að burðast með forsetatignina á ferðalögum eða hún ferðist í einkaþotu frá Reykjavíkurflugvelli, kalli brýn verkefni hana til útlanda.

 

Lokins eru menn að vinna að alvöru málum.

Ekki geta menn ætlast til, að einhverjir dólgar geti bara leitað á þingkonum okkar og eins er auðvitað um blaðasnápa sem hringja BEINT heim í SJÁLFAN Seðlabankastjóra, --að eigin sögn.

 

Loksins eru menn farnir að sinna brýnum verkefnum.

 

Vita menn ekki enn, að sumir eru jafnari en aðrir og sléttur pöpullinn á engan rétt til sömu meðferðar og Hámenntað fólkið í ríkisstjórn, loks eftir að þeir eru nú komnir að kötlunum.

 

Mibbó

Var alveg bit í gær en líður nú betur, þar sem verið er að vinna í endurbótum, brottrekstrum--ef með þarf,--þannig að réttir og sléttir löggimenn og landamæraverðir fái að fara höndum um okkar jöfnustu þingmenn.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband