Ritskoðuð afstaða manna lögð fram.

 

Hvernig í dauðanum er hægt að segja með einhverri sanni, að þetta álit sé fram sett af sama fólki og setti fram lögfræðiálitið fræga??

 

Barðir eru þeir til bókar og rita nú eftir pöntun, sama hræðslu áróður og farið hefur um sali Alþingis frá undirlægjunum í SF og VG.

 

Þetta lið er vitstola af uppgjöf og hræðslu við uppdiktaða andstæðinga og hótanir Breta.

Sama vitfirrta lið vill svo undir befalning Breta og Hollendinga í ESB og ævarandi slaverí þeirra.

 

Aular og landsölumenn.

Svo hefur nú komið fram vottað og staðfest, að nýráðinn Seðlabankastjóri var HÖFUNDUR að peningamálastefnu þeirri sem SF og VG hafa hvað grimmilegast gagnrýnt og talið undan eitruðum rifjum Davíðs nokkurs runnið.  Einnig að svonefnd Verðbólgumarkmiðs stefna sé úr haus sama nýráðna Seðlabanka.

 

VAr þetta hyski ekki úr sama húsi og hrópaði ,,allt upp á borðið" fyrir utan Alþingi en er nú að fela og stinga undan hverju skjalinu af öðru?

 

Ragnar Reykás er fastur fyrir og skiptir EKKI um skoðun, ef miðað er við Steingrím von Vindhaüser.

 

Ekki er bjart framundan fyrir ungt fólk á föðurlandi mínu og ekki skiljum við 68 kynslóðin við gott bú í hendurnar á börnum okkar.

 

PEREAT VG

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Alvarlegt að synja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband