8.9.2010 | 11:11
Upp koma svik um síðir.
Upp koma svik um síðir.
Svo hljómaði orðatiltæki sem þekkt var í minni bernsku og líklega langt fram eftir. Þetta virðist hafa gleymst eða jafnvel Steingleymst hin síðari ár þenslu og bókhaldslegra fimleika og sjónhverfinga í rekstri banka og annarra fyrirtækja, sem virtust geta farið að vild um akur annarra og eigur þeirra allar, í skjóli Verðtryggingar og á köflum dómstóla.
Því er ekki nema von, að Steingrímur hafi steingleymt þessum loforðum sínum við Jóhönnu og aðra Krata, þegar hann belgdi sig út í héraði um andstöðu sína við inngöngu í ESB.
Það er ætíð að koma betur og betur í ljós, að það er dagsatt sem pabbi minn heitinn sagði svo of,,Það er ekki orð að marka Kommúnista eða vinstri Krata, sannleikurinn er þeim gersamlega ókunnur".
Mikið sakna ég föður míns
Miðbæjaríhaldið
Tókust á um ESB fram á vorið 2009 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.