22.1.2008 | 13:22
Svona eiga sýslumenn að vera.
Mikið er gott að lesa einmitt svona nokkuð, ekki neitt ofbeldi, mannkærleikurinn og hjálpfýsi í fyrirrúmi.
Afskaplega ber þessi vegalausi maður lögreglunni hér góða söguna, þegar hann loks kemst til sinna heima og getur litð yfir farin veg með rósemi hugans.
Þetta minnir á þá góðu tíma þegar löggurnar okkar gengu um prúðbúnar (í gömlu góðu búningunum) en voru ekki með endursskinsborða í taflborðslíki utanum sig og jafnvel á kastskeytinu líka.
Ógeðslega ljótur búningur og hef ég heyrt í allmörgum vinum mínum, innan lögreglunnar, að þetta sem heita á endurbættur lögreglubúningur, se´ekkert annað en óklæðilegir lafrar með bresku ívafi. Oyj barasta.
Prikin fara upp á Skaga.
Miðbæjaríhaldið
Sat á ferðatösku við Akratorg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fannst þér við virkilega flottari með skopparahúfurnar?
Steinarr Kr. , 31.1.2008 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.