31.7.2008 | 13:34
Alltaf sama sagan með Ólaf.
Helvítis karlinn er ætíð fyrir.
Getur hann ekki bar gert þetta á Bersastöðum, hvar hann þarf ekkert að vera fyrri venjulegu fólki í venjulegum erindagjörðum niður í Miðbæ?
Hann var sjálfkjörinn núna og mér þætti alveg nóg umstang, að honum yrði sent bréf í ábyrgðarpósti, hvar honum væri tilkynnt, að framlengd væri ráðning hans til 4urra ára enn og lyki ráðningunni 01. 08.2012
Það er óþarfi að vera að trufla venjuleg Miðbæjaríhöld á því, að forseti ,,hinna" sé að fá endurráðningu án auglýsingar.
Skyldi hún vita af þessu Kratinn í Kópavogi?
Annars er allt í góðum málum í Miðbænum, blómin gróa og endurnar fá í sig á Tjörninni.
Góðviðrisdagar.
Nokkrir góðir dagar án Utanríkisráðherra.
Miðbæjaríhaldið
Götum lokað vegna embættistöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ég var auðvitað að gera að gamnin mínu í þessu dýrðarinnar dásemdar koppalogni sem nú ríkir í henni Rvík.
Hver bongó-blíðu dagurinn af öðrum.
Hvernig óí ósköpunum er hægt að pæla í svona hrútleiðinlegu og embættistöku ÓRG?
Bjarni Kjartansson, 31.7.2008 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.