13.10.2008 | 11:44
Það er alldeilis trúin sem frúin hefur á gæðum útlendinga.
Jæja hún hefur talað blessunin og vonandi hefur hún náð nokkrum bata.
Ekki virðist árásir og þjófnaðir á eigum íslenskra fyrirtækja í ESB landinu Englandi og svipaðar trakteringar í Hollandi og víðar, hafa haft nokkur áhrif á Ingibjörgu í þá veru, að fæla hana frá aðild að því batteríi, hvar Bretar RÁÐA nánast því sem þeir vilja í samráði við Frakka og Þjóðverja.
Hann taldi sig ekki þurfa að spyrja félaga sína í NATO hvort mætti útnefna Geir Harða og hana sjálfa HRYÐJUVERKAMENN og þau þá forkólfa hryðjuverkamanna, sem sé á pari við þann skeggjaða í Íran eða hvar svo sem hann er niðurkominn þessa stundina.
IMF hefur oftar en ekki komið illu einu til leiðar, þar sem þeir hafa haft tögl og hagldir, samanber S-Ameríka og víðar.
Misskildi ég eitthvað í umsögnum IMF um Ísland í sumar?? Var þar ekki talað um að öll stjórnsýsla væri til stakrar fyrirmyndar og í raun væri ÖLLU vel stjórnað í peningamálum, vaxtastefnan hin eina rétta og svona heilt yfir væri ekkert að NEMA EF VÆRI, AÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR ÞYRFTI STRAX AÐ LEGGJA NIÐUR OG SETJA STARFSEMINA UNDIR HINA TRAUSTU OG ÉG ENDURTEK --TRAUSTU BANKA HÉRLENDIS.
HALLÓ!!!!!!!!!!!
Hvað hefur breystst svo mikið í stjórn peningamála, og regluverki okkar á innan við tveimur mánuðum??????
Hvernig væru íbúðaeigendur staddir, væri ekki til Íbúðalánasjóður??
Væru veðin núna ÖLL í eigu erlendra banka??
Miðbæjaríhaldið
Óskar Utanríkisráðherra vorum betri bata.
Ingibjörg Sólrún: Fyrst IMF og svo ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.