20.2.2009 | 10:44
Hvurn sjálfan andsk.... var Davíð að gera í Sviss??
Allt verður okkur að óhamingju, nú er farið að hrikta í stoðum Sviss-Bankana.
Getur Davíð ekki verið heima hjá sér?
Bankakerfið í Bretlandi að falli komið,
Draslið hrunið í Írlandi líklega eftir skoðunarferð Davíðs á Pólóleiki þar.
Skoskir bankar hrynja líkt og domino kubbar, örugglega eftir að Davíð fór til Enverness til að skoða annað ævintýa fyrirbrygðið.
Danskir bankar komnir á hliðina, allt Davíð að kenna og bláa höndin, hefur örugglega slegið danska fjárfesta leiftursnöggt í hausinn eftir að þeir lánuðu Bónus fyrir Magasín Du Nord.
Haldið Dabba heima, spakir telja að hann hafi farið snöggann túr til NY og þess vegna sé hallæri á WS og bankar þar allir að liðast í sundur og Obama að gera sig kláran í bátana til björgunar Singmann og Goodmann eða hvað þessir vöndulsalar allir nú heita.
Setjum Davíð í farbann. Ekki meira flakk sem hefur í för með sér enn frekara hrun erlendis.
Mibbó
Sviss gæti orðið næsta Ísland" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bjarni - Hjálpi þér hamingjan! - ertu kominn með Samfylkingar einkenni - Davíð hér - Davíð þar og Davíð allstaðar - Þú þarft að fara í Samfylkingar einkenna afeitrun !!!!!!!!!
Benedikta E, 20.2.2009 kl. 10:54
Eitthvað misskilur þú Benedikta, a.m.k. skil ég Bjarna þannig að einhverjir kenni Davíð um allt, af hverju ekki þessi atriði líka ??
Eða eins og einhver sagði: "Hættum að kenna Davíð um allt sem miður fer, nóg er að hann beri ábyrgð á Morðinu á Kennedy og Seinni heimsstyrjöldinni".
Sigurður Sigurðsson, 20.2.2009 kl. 11:05
DETOX virkar ekki á Hórtfyndin stöðvar heilans.
Annars
tak fyrir ábendinguna.
Þessi karl er alstaðar.
Passið ykkur á Davíð, hann gæti verið í Jóhönnugerfi Spaugstofunnar.
Bjarni Kjartansson, 20.2.2009 kl. 11:06
Gengdarlaus heilþvottur verður sýnu verri þegar fólk vill ekki jafna sig á áhrifunum. Fjóðra-Valdið ehf. var beitt árum saman í góðri samvinnu við Samfylkinguna og leiðtoga hennar...sem ég tel versta stjórnmálamann á Íslandi.
Haraldur Baldursson, 20.2.2009 kl. 11:54
Bjarni: þarna kom skíringin á því hvers vegna allt er ekki í steik í Færeyjum, þar hefur Davíð líklega ekki verið nýlega, í það minnsta, girðum karlinn af í bankanum eins spaugstofan gaf til kynna um daginn, svo hann komist ekki til Noregs.........
Magnús Jónsson, 20.2.2009 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.