2.10.2009 | 08:45
Farsæl stjórn og góð.
Friðriki ber að þakka góð störf í þágu íslendinga. Hann hefur farið fram af festu og þurft að þola jafnvel skelfilegustu slettirekur í stól Iðnaðarráðherra. Lipurð hans er viðbrugðið og framkoma flekklaus í samskiptum við erlenda aðila. Hvergi gefið eftir en okkar málum haldið fast fram.
Þar fer sjéntilmaður og heimsborgari.
Eftirsjá af honum og vandséð, hvernig eftirmaður hans ætlar að na´þeim tökum sem Friðrik hafði á fyrirtækinu og umhverfinu.
Miðbæjaríhaldið
Lýsir yfir verklokum og lætur af störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú þarf hann bara að vinna að einu góðu máli enn fyri þjóð sína, að koma flugvellinum í Reykjavík endanlega á sinn stað með glæsilegri flugstöð. Þetta fæti hann gert með aðra hendina fyrir aftan bak, svo snall er hann.
Það verður eftirsjá í honum úr stól forstjóra Landsvirkjunar og hans eftirmaður þarf að halda vel á spöðunum, til að vera ekki með tærnar það sem Friðrik hafði hælana.
Framsóknarkveðja af Austurlandi
Benedikt V. Warén, 2.10.2009 kl. 15:12
Já við skulum þakka Friðriki Sófasyni fyrir að setja Landvirkjun nánast á hausinn. Eitthvað sem ætti í raun ekki að vera hægt þegar um slíkt einokunarfyrirtæki er að ræða, en FL-okksmönnum er margt til lista lagt í gjaldþrotalistinni þegar þeir taka sig til.
Helgi (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 20:55
Óumdeilt mætazti foryztumaður Valhallar um mína tíma, verzt að hann hafði vit til að hætta í pólitík.
Steingrímur Helgason, 3.10.2009 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.