26.11.2009 | 09:42
Höfum fengið nóg af ,,snilli" þessa manns!!!!!!
Við Íslendingar erum búnir að fá okkur fullsadda af snilli þessa manns.
Höfundur af ,,Verðbólgumarkmiðum" og þeirri ,,Peningamálastjórn" sem fylgt var í blindni undanfarin ár og áratug eða svo. Jafnvel lengur.
Þessi maður, sem talaði um, að einhverjir blaðamenn hringi í SJÁLFAN Seðlabankastjóra, ætti að draga sig í hlé og hætta að maka sínum hugaflygsum á aðra.
Komið er yfrið af lánum og frekar ætti þessi maður að krefjast lögsókna á hendur þeim sem komu með falsaða pappíra til SÍ og kynntu glimrandi gróða og sterka eiginfjárstöðu (með upplognum bréfum og hlutum í engu haldbærara en Norðurljósum) og kröfðust lána. Kröfurnar voru svo harðar, að ríkisstjórnin gaf eftir eins og hún lagði sig, gegn tillögum sumra í bankanum.
Hrollvekjandi lið
Mibbó
Ríkið leiði nýjar lántökur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyr heyr !
Engu við þetta að bæta.
Jú annars! Verðbólgumarkmið eru í mínum huga mælikvarði á það sem verðbólgan verður ekki, hafa verðbólgumarmið og verðbólguspár seðlabankans einu sinni verið innan 15% skekkjumarka. Það var árið 2002.
Ragnar Þór Ingólfsson, 26.11.2009 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.