Hvurn sjálfan andsk.... var Davíð að gera í Sviss??

 

Allt verður okkur að óhamingju, nú er farið að hrikta í stoðum Sviss-Bankana.

Getur Davíð ekki verið heima hjá sér? 

 Bankakerfið í Bretlandi að falli komið,

Draslið hrunið í Írlandi líklega eftir skoðunarferð Davíðs á Pólóleiki þar.

Skoskir bankar hrynja líkt og domino kubbar, örugglega eftir að Davíð fór til Enverness til að skoða annað ævintýa fyrirbrygðið.

Danskir bankar komnir á hliðina, allt Davíð að kenna og bláa höndin, hefur örugglega slegið danska fjárfesta leiftursnöggt í hausinn eftir að þeir lánuðu Bónus fyrir Magasín Du Nord.

 

Haldið Dabba heima, spakir telja að hann hafi farið snöggann túr til NY og þess vegna sé hallæri á WS og bankar þar allir að liðast í sundur og Obama að gera sig kláran í bátana til björgunar Singmann og Goodmann eða hvað þessir vöndulsalar allir nú heita.

 

Setjum Davíð í farbann.  Ekki meira flakk sem hefur í för með sér enn frekara hrun erlendis.

 

Mibbó

 


mbl.is „Sviss gæti orðið næsta Ísland"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Bjarni - Hjálpi þér hamingjan! - ertu kominn með Samfylkingar einkenni - Davíð hér - Davíð þar og Davíð allstaðar - Þú þarft að fara í Samfylkingar einkenna afeitrun !!!!!!!!!

Benedikta E, 20.2.2009 kl. 10:54

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Eitthvað misskilur þú Benedikta, a.m.k. skil ég Bjarna þannig að einhverjir kenni Davíð um allt, af hverju ekki þessi atriði líka ??

Eða eins og einhver sagði:  "Hættum að kenna Davíð um allt sem miður fer,  nóg er að hann beri ábyrgð á Morðinu á Kennedy og Seinni  heimsstyrjöldinni".

Sigurður Sigurðsson, 20.2.2009 kl. 11:05

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

DETOX virkar ekki á Hórtfyndin stöðvar heilans.

Annars

tak fyrir ábendinguna.

Þessi karl er alstaðar.

Passið ykkur á Davíð, hann gæti verið í Jóhönnugerfi Spaugstofunnar.

Bjarni Kjartansson, 20.2.2009 kl. 11:06

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Gengdarlaus heilþvottur verður sýnu verri þegar fólk vill ekki jafna sig á áhrifunum. Fjóðra-Valdið ehf. var beitt árum saman í góðri samvinnu við Samfylkinguna og leiðtoga hennar...sem ég tel versta stjórnmálamann á Íslandi.

Haraldur Baldursson, 20.2.2009 kl. 11:54

5 Smámynd: Magnús Jónsson

Bjarni: þarna kom skíringin á því hvers vegna allt er ekki í steik í Færeyjum, þar hefur Davíð líklega ekki verið nýlega, í það minnsta, girðum karlinn af í bankanum eins spaugstofan gaf til kynna um daginn, svo hann komist ekki til Noregs.........

Magnús Jónsson, 20.2.2009 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband