Nú er komin aðferð við að redda öllu þessu uppi á Skaga.

Við notum sömu reglur og á við grænmetið, sendum liðið í bað og höfuð eingöngu ísl vatn í boði.

 

Þá verða flóttamennirnir auðvitað íslendingar, líkt og grænmetið verður íslenskt.

 

Ekkert mál,

ekkert vesen.

 

Miðbæjar......


Á Brimarhólm með manninn.

Hér klikka dómararnir algerlega.

 

Dómafordæmi eru fyrir því, að menn voru dæmdir til húðláts og Brimarhólmsvistar fyrir snærisþjófnað.

 

Svona menn eru óforskammaðir og stórhættulegir rekstri almennra verslana, stela eigum verslunarkeðja og setja afkomu manna sem þær eiga í uppnám.

ÉG skil ekki í því, af hverju sektin var ekki hærri en raun ber vitni.  Skitnar 185 þúsund, fyrir alla þá vinnu sem lögð er á herðar lögmanna , afsakið, fulltrúa og ritara lögmanna, ekki verður tímakaupið hátt, ef bæði verjandi og sækjandi, sem þurfa að mæta í dómsal, (sem þeir þurftu hvort sem er, ef aðeins sktinar 185 þús eru í boði.

 

Allt annað má er með heiðverða borgara, sem SAKAÐIR ERU UM  olíusvindl, breytingar á innflutningspappírum og svoleiðis smotterí fái sýknu.

Dómskerfið er handónýtt og nær ekki utanum nein alvöru mál, því þarf að dæma sjúklinga til fangelsisvistar í stað þess, að bjóða viðkomandi líkn og aðstoð með því að ,,dæma" hann til sjúkrahúsvistar í þeim tilgangi, að ná utanum sjúkdóminn.

 

Miðb´jaríhaldið

 

gróflega misboðið


mbl.is Stal súpu og fer í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEssum pótintátum í útlandinu kemur bara ekkert við, hvernig við högum okkar íbúðalánum.

Við höfum hvergi afsalað okkur forræði yfir því hvernig við aðstoðum okkar að eignast húsnæði.

Bankarnir og aðrir gróðapungar geta algerlega látið þessi mál í friði.  Þeir hafa svo sem ekki sýnt af sér neina sérstaka snilld í þeim efnum, frekar verið í því, að blekkja og leggja gildrur fyrir unga fólkið, svo sem, með því að lána á kjörum sem eru ,,með afslætti"  Það er, vexir sem skrifað er undir, er,,bara í plati" lántakandinn átti að greiða allt aðra vexti, það er eftir að ,,afslátturinn" var tekinn inn.

 

Nú er aftur á móti komið allt annað hljóð í strokkinn, meintur ,,afsláttur" ver bara tímabundinn og til skoðunar ,,síðar" allt undirskrifað og löglegt.  Því eiga afar margir lántakendur von á, að þau kjör sem þau héldu að væru viðvarandi, (höfðu ekki ástæður til að ætla annað, ef auglýsingar bankana og orð starfsmanna voru sannar) eru ekki lengur í gildi og verulega hærri greiðslur muni falla til.

 

Ella verður draslið sent í löffana, sem nú auglýsa mikinn innheimtuþjónustu, og þeir setja á kostnað á kostnað ofan, vexti af því og dráttavexti ofan á allt klabbið. 

Síðan þegar stabbinn verður ókleyfur, verður húsnæðið boðið upp og allt sem ekki ,,náðist á uppboðinu, svo sem kostnaður og þessháttar, verður afskrifað til þess, að lækka tekuskatt, hvort um RAUNVERULEGAN kostnað var um að ræða eða ekki.

Látið opinbera sjkóðin okkar í friði og látið útlenda gróðapunga og innlenda EKKI segja ykkur fyrir verkum.

 

Gjör rétt

Þol ei órétt

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Kerfi sem virðist gefast vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEir vita ekkert þessir ríkislöggumenn.

Hvað hala menn að ríkislöggurPolice viti? Ha?  Spyrjið bara okkar mann ú Vestmannaeyjum Lúlli Berg vill lenggja þetta lið niður vegna þess, að það er með öllu óþarft.

 

ÞEssar sprengjur eru úr vopnabúri Kópamaros" það er nánast bókað.Smile

 

Við verðum að eiga okkur svona ekta hryðjuverkamenn.

 

ÞAð er svo retró, að vera bara friðsælir, með ekkert alvöru svona problem.Frown

 

Ekki einusinni til alvöru Gettó, hvað þá annað.

 

Þeir í Sódómu Rvík vildu stofna HÍM (hina íslensku Mafíu)  það tókst ekki, þar sem Eggi fékk hvergi nægjanlega hraðþornandi steypu í svona Mafíu-skó.Cool

 

Iss Kópamaros eru svona alvörunni, eða fullorðisns eins og sagt er í kornauglýsingunni.Ninja

 

Miðbæjaríhaldið

 

vill að þjóðfélagið verði svona Kosmópólitan með öllu sem fylgir og fylgja ber, fjöl´þjóðlegt með trukki.Bandit


mbl.is Sprengja frá seinna stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er hé á ferð?

Er þetta frá tímum ,,Kópamaros"??  Vita menn nokkuð hvar Ragnar Skjálfti var, þegar þessi fór í jörð?

Kópamaros voru þeir kallaðir, sem talið var, að stæðu fyrir hugsanlegum sprengingum uppi í Hvalfirði við olíubirgðarstöðvarnar.

Eða er þetta enn ein óræk sönnun þess, að Bretar vissu ekkert um, hvar þeir setu niður sprengjur eða tundurdufl sín, voru sjaldan edrú og gleymdu því hvert í andsk. þeir settu sprengjudótið sitt.

 

Við þjóðholla íhaldið erum þess fullvissir, að annaðhvort er.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Sprengjulaga hlutur fannst í húsgrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er til ráða?

Nú styttist verulega sá tími sem til ráðstöfunar er, til að svara ávirðingum Sameinuðu þjóðanna vegna dóms um MANNRÉTTINDABROT okkar yfirvalda.

einu svörin, sem undirritaður fékk á fundi með Geir í Valhöll síðastliðinn laugardag var, að allur tíminn yrði nýttur.

Svo hnýtti hann við, svona í skýringarskyni, að hann væri hissa, já jafnvel hneykslaður á þessum dómi.

ÞAð segja allir þjóð,,höfðingjar" sem hafa verið víttir vegna viðlíka brota.  Segja allir,. að dómstóllinn hafi ekki forsendur til, eða þekkingu á, ,,sérstökum aðstæðum" og bla bla.

 

Þetta sagði Pol Pot heitinn, og Saddam, svona voru viðbrögð allra í S-Ameríku.

Svona gerðu kommatitts-stjórnvöldin líka.

Enginn í dómi SÞ skilur upp né niður í ,,sérstökum aðstæðum" Kvóta,,eigenda".

Við það situr.

 

SVo er Mogginn  minn farinn að bregðast við líkt og allir pappírar í A-Evrópu, handan Járntjaldsins gerðu, banna ákveðnar skoðanir, hugsanir og meldingar við fréttir þeirra.

Skjöldur frjálsrar hugsunar á Vesturlöndum er að verða eins og Pravda.

Hvað ætli hann nafni minn Ben segði við svonalöguðu?

Ætli hann væri par hrifinn af því að blaðamenn mega ekki nefna menn og málefni réttum nöfnum, bara vegna þess, að það ,,hentar ekki" ritstjórn?

 

Svo eru menn dæmdir fyrir skoðanir,--athugið skoðanir!!!!! í dómssölum íslenskum.

 

Hvert stefnir mitt elskaða þjóðfélag??

 

gefið dauðum ró en hinum líkn er lifa.

 

Miðbæjaríhaldið

gersamlega bit á framferði ,,sinna manna"


Það dimmir að á Vori.

Ég srifaði um æskuvin sonar míns, sem greindist aftur með Krabbamein.

 

Við vorum vongóð en jarðbundin.

 

Nú hrannast upp kólguský og ekki lítur vel út með framhaldið, ef ekki kemur til algert kraftaverk.

 

Pilturinn er tvegga barna faðir.

 

Annað barnanna er of ungt til að skilja hvað er að, hitt ekki.

 

Unga parið gifti sig í kapellunni í  Landsanum, núna um helgina.

Ekki eftir neinu að bíða með það.  Lögformleg stað eiginkonu ku vera öruggari, ef allt fer á versta veg.

Foreldrar drengsins ganga nú í gegnum heljarkulda á Hörpu.

Hvernig huggar maður drenginn sinn, þegar svona lítur út? 

Daglegt amstur, fall verðbréfa, gengisfall eigna, Krónu og hinna stundlegu gilda, virðast svo skoplítils virði nú, þegar ástvinur á í baráttu upp á líf og dauða.

 

Hvernig halda menn sönsum, þegar allt bendir til, að hefði mátt koma í veg fyrir endurkomu sjúkdómsins en drengurinn var með lítið sortuækli, sem fjarlægt var fyrir árum síðan.  Eitthvað klikkaði í eftirfylgni, að því er virðist fyrir svona leikmann eins og mig.

 

Herran ræður.

 

Ég pikka mér til hugarhægðar og skelli vanmáttartilfinningunni út í tómið, hvar einhverjir eru fyrir sem skilja þetta jafnvel betur en ég.

 

Mér líður illa, þar sem þessi ungi piltur var afar tíður gestur á hiimili mínu þegar ég bjó vestra og einnig eftir að hann fluttist hingað suður.  Var svona eins og útvíkkun á Stórfjölskyldunni, sjálfsagður fylgihlutur með syni mínum, sem nú er sundurtættur af sorg yfir því að geta ekki linað þjáningar vinar síns, eða lagt honum annarskonar lið.

 

Miðbæjar....

 

Vinur sem á ekki ráð, né getu.BlushHeart

 

 


Framtíðin er ljós, Fjallagrasa paté

 

Eg skil ekki hvernig menn sjá fyrir sér, að staða okkar, sem einna fremstri þjóð í beislun jarðvarma og virkjun hans til góðs fyrir landsmenn alla, fær staðist áframhaldandi árásir stórfurðulegra ,,náttúruverndarsinna".

 

Nú hlýtur aðliggja fyrir, að Þeystarreykir, Krafla og aðrar varmavirkjanir eru úti í vindinum hrollköldum sem hélrok á glugga á Mörsug.

Ekkert getur orðið að framþróun í atvinnuvegum norðanmanna á Húsavík og víðar, þar sem búiið er að gefa tóninn fyrir það sem koma skal.

 

Ég tæki því afar óstinnt upp, leyfði Skipulagsstofnun boranir og virkjanir á ofannefndum stöðum og væri það í algerri andstöðu við fyrri gerðir og samræmis ekki gætt.

 

Að vísu er eitt gott við þennann úrskurð.

 

Nú krefjum st við þess, að allar framkvæmdir sem miðuðu að því, að hefja boranir fyrir norðan og álver á Bakka, verði snarlega stöðvuð, svo sem allar áætlanir um Vaðlaheiðargöng, því nú eru þau með öllu óþörf og einhverstaðar verðu r að spara á móti minnkandi hlutfalli á landsframleiðslu.

 

Til hamingju kæru landar með framtíðarsýn VG

Prjónelsi og fjallagrasamjólk og paté.

Lággjaldaflug hingað til lands og láglaunastörf í ferðamannaiðnaði.

 

Miðbæjaríhaldið

 

vonaðist til, að leið framfara og sköpunar yrði valin, í stað stöðnunar og atvinnuleysis


mbl.is Hætt við Bitruvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er með húmörinn???

Eins gott að hörundsdökkir Kanar taki ekki á húmör, líkt og Múslimir  tóku Dönskum hér í eina.

 

Ofurviðkvæmni og PC tilburðir þarna ytra.

 

Svo er annað mál um, hvort eitthvað sé athugavert við okkar á köflum kaldranalega húmor.

 

Ég tel ekki.

 

Miðbæjaríhaldið

 


mbl.is Myndasaga Sigmunds gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listgjörningur --eftir allt rasistaásakanabullið.

Nú er fram komið á Vísi.is, að þessi áróðursspjöld með hvítum og svörtum rollum, er ,,lístgjörningur" og höfundur ekki illa ættaður, heldur ,, Sýningarstjóri er Björn Roth, sem er sonur hins víðfræga Dieter Roth."

HVað' segja Nú þeir vinstri góðmennskugasprar, sem hafa hneykslast og krafist þess, í fúlustu alvöru, að viðkomandi sóðar, /rasistar verði látnir greiða fyrir subbuskapinn og hreinsun hans af veggjum og mannvirkjum borgarinnar??

Auðvitað geta þeir ekki annað en verið samkvæmir sjálfum sér og krafið Roth þennann um greiðsluna.

Þetta lið er annars afa aumkunarvrt, því það er svo gersamlega tvísaga í öllu sem víkur að svona upplímingum á plakötum.

Ef þetta er ,,listatengt" þa er í lagi með sóðaskapinn og einnig ef þetta er áróður frá Samfylkingunni (en þeir límdu allskonar ljót plaköt upp fyrir síðustu kosningar) en svo verðrur liððið band sjóðandi vitlaust.

 

Miðbæjaríhaldið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband