Færsluflokkur: Bloggar

Hver biðst afsökunar?

Mig langar að setja hingað inn, svar sem ég setti á blogg Gunanrs Axels Axelssonar.

 

Þar fer hann fram á frekari afsökunarbeiðnir frá íhaldinu.

 

Hér er pistillinn:

 

 

Sumt sem þú hér setur fram er réttmætt og satt.

Við sem vöruðum við þeim stórfelldu hættuspilum, sem fram fóru allt frá setningu Ólafslaga hér í denn, að ekki sé talað um Kvótalögin og inngöngu í EES bullið, náðum EKKI  markmiði okkar, sem var að sníða ísl. þjóðfélag að gömlum gildum heiðarleikans.

Það voru svo margir ,,faglegir" bullukollar á leið okkar.

1.  Gylfi Þ ásamt og með Jóhannesi Norðdal, suðu saman bull og vitleysu, sem auðvitað gat ekki staðist í lifandi hagkerfi, sem var að vaxa, --Verðtryggingar hugmyndir.

2. Kvótakerfið gat heldur ekkert orðið annað en uppeldissvæði og æfingabúðir í falsi lygi og svindli.  Samt voru það ,,mætir menn" í stétt Hagfræðinga og allskonar ,,faglegir" gaurar, sem suðu þetta bull saman og helltu yfir þjóðina.

3.  EES samningurinn GAT ekki gegnið fyrir okkur, til þess vorum við of fámenn og með of mikið af náttúruauðlindum og velsæld, sem var eftirsóknarverð í augum umheimsins, sést best á sprengingu í innflutningi fólks.  Við gátum ekki opnað okkar kerfi eins og við gerðum án stóráfalla.

Við trúðum að men væru heiðarlegir en þar gleymdum við einni kröfunni til okkar um varkárni, því að við hefðum mátt vita, að Höfuðsyndirnar Sjö eru samar við sig, hvort sem er í Wall Street eða Kaupþingi.

Það er plagsiður á okkur, að verða Kaþólskari en Páfinn í ölu sem nýjabrum er á og hægt að halda málþing um og bulla nógu helvíti mikið um.  Þess vegna förum við á taugum, þegar menn tala um ,,með faglegum hætti" og setjum á fót allskonar ,,stofur" og hvað þetta nú allt heitir.

Við Sjálfstæðismenn HEFÐUM betur vakað lengur og verið betri við þjóð okkar í því samhengi, að koma betur í veg fyrir kratísk stórslys.

ÞAR LIGGUR SEKT OKKAR  og auðvitað að hafa ekki stoppað Gróðapunga í okkar flokki á græðgibraut þeirra.

Hinsvegar er sekt Samfylkingarinnar að viðbættu því sem að ofan er ritað um ,,Kratakerfin" er að þeir gegnu milli bols og höfuðs á DÓMSKERFINU með varðstöðu í Fjölmiðlamálinu og árásum á alla sem sóttu Baugsmál.

Það eitt og sér er næg ástæða hrunsins, því öngvir sem hefðu átt að vara við eða sækja til sakar´svindlara, ÞORÐU ÞAÐ EKKI af hræðslu við fjölmiðla og Borgarnesræður.

Miðbæjaríhaldið

verið lengi á pólitísku sviði á Íslandi þó ætíð a´bak við tjöldin.

Bjarni Kjartansson, 3.3.2009 kl. 12:05


Sitthvað Jón eða Séra Jón.

 

Samkvæmt ætti þessi maður að fara rakleitt í mál við Frakka vegna netbanka franskra banka sem eru nú komnir í þrot.

 

Frakklandsforseti var hinnsvegar á því, að reglur gerðu ráð fyrir að EINUNGIS væri ábyrgð á þeim upphæðum sem væru í tryggingasjóðum bankana.

 

Þetta sýnir svo ekki verður um villst, að ESB klúbburinn er klúbbur algerra forréttindahópa meðal þjóða.

Stóru þjóðirnar geta hagað sér eins og þær vilja gegn litlu og hinir sem eru í störfum á vegum sambandsins standa í , að skrökva fyrir ,,húsbændur sína" líkt og leiguþý gerðu hér í denn.

 

Afar óyndislegt fyrirbæari og þeir seme ru að vilja okkur þarna inn eru auðvitað svipaðrar gerðar og embættismennirnrir sem standa ljúgandi um reglur og framfylgni þeirra.

 

Annaðhvort er Frakklandsforseti að bulla eða þessir starfsmenn sem þora ekki að tala gegn Darling og Bröwn.

 

Eða eins og stendur á bol nokkrum sem ég sá mann ganga í .

 

dear, wat is the colour of english shit?

It is Brown --Darling

Mibbó


mbl.is Aldrei vafi um skyldu vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg skilyrt virðing.

 

Það er svo, að menn kalla ekki allt ömmu sína í  tvískinnungshætti.

Nú er í lagi, að gefa skít í álit Sigurðar Líndal, nú eru orð hans bar ekkert viðeigandi.

Nú er það nefnilega Vinstri menn sem fara losaralega með Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands, plagg sem var í gylltum ramma í huga menna í Fjölmiðlafrumvarps slagnum.  Þess vegna er Stjórnarskráin ófullkomin og bara til viðmiðunar og alsekki til að fara eftir neinum bókstaf þar,--það þarf að breyta og ,,bæta" það plagg, gamaldags og úrelt.

 

Öðruvísi mér áður brá.

 

Svo eru kommar að tilnefna menn, sem mega bara ekkert vera að því að vera í forsvari fyrir Kaupþings skilanefnd, er alltof upptekinn við málaferli við Ríkið og á auðvitað eftir að skrifa nokkra kafla í rekstrarsögu Br Ormsson.  Skil ekkert í Steingrími sem vill að allir viti allt um skipanir og aðstæður þeirra sem skipaðir eru til starfa fyrir ríkið, að ekki sé nú talað um fjármála-tengd störf.

 

Einhverra hluta vegna gleymdist alveg að segja frá hvernig þeir tveir tengdust.

 

Æ Æ sorry og allt það.

 

Svo er Samgönguráðherra að tala um að ríkið fari að bora í fjöll í Eyjafirði til að Vaðla,,heiðin" (sem Vestfirðingar líta á sem tiltölulega litla brekku) verði lögð í göngum og ríkið borgi draslið.

Rvíkingar og nærsveitamenn geta áfram farið vegin til Selfoss og spilað rúllettu um, hvort þeir komist lifandi frá því.  MEst lagi 2+1 Svíavitleysa.  Nú þegar hafa bílar stórskemmst og fólk fengið byltur VEGNA víravirkisins sem er á þessari leið í 2+1 bullinu.

Nei það er með hreinum ólíkindum hve langlundargeð manna er mikið og hryggstykki menna orðið tilfinningalaust eftir langvarandi lamstur vanda frá yfirvöldum sem eru að fara að ,,faglegum hætti" og bla bla bla að hætti Vinstri manna.

 

Skítapakk

 

Miðbæjaríahldið


Spara helling með að LOKA RVK

Spara helling með að loka Rvíkurflugvelli go senda allt flug suður í Keflavík.

Ekkert þarf þar að byggja því að flugstöð er þar tilbúin fyrir innanlandsflug, (gamla flugstöðin sem notuð var fyrir Loftleiði og Flugfélagið)

Landhelgisgæslan þangað hvort sem er, ekert að gera við flugvöll fyrir sjúkrahús, nægir að nota þyrilvængjur fyrir venjulegt neyðarflug og lenda við spítalana í Rvík.

 

Hellings sparnaður við umferðamannvirki í Rvík, opna fyrir þverum hjá Hlíðarfæti og þannig tengja betur helstu vinnusvæði Rvíkur svo sem Háskólana og Landsann.

Frekar væri að nota langann flugvöllinn í Þingeyjasýslu og gera að aðalvelli Akureringa. þar eru allar aðstæður til, að búa til varaflugvöll fyrir millilandaflug og þannig mögulieika á flugi til útlanda og þá blindflugi að velli á N landi.  Svoleiðis getur tæplega orðið á Akureyrarvelli, sakir landfræðilegrar legu (inn í tiltölulega þröngum firði )

 

Miðbæjaríahaldið

Kann allskonar sparnaðarráð. :-)


mbl.is Hagrætt í rekstri flugvalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar er ég sammála séra Karli.

Ég treysti ekkert frekar LÍJúgurunum fyrir fjölmiðli, frekar en öðrum gróðapungum em verja vilja sína SÉRHAGSMUNI.

Vonandi segja menn áskriftum sínum upp í mótmælaskyni.

Athugandi er, hvort ekki sé rétt að hafa AMX sem upphafssíðu.

Ég semsagt tel einsýnt, að þessir útgerðamenn eru EKKI að hugsa almennt um málfrelsi, það hefur sýnt sig hvernig sýn sumra er á hvað er satt og hvað er hvað, þegar Glitnir fór í strand og viðkomandi sagði Davíð hafa staðið að bankaráni.  ÞAr var Samherjamaðurinn EKKI samherji sannleikans.

 

Miðbæjaríhaldið

man bjartari daga í fjölmiðlun.


mbl.is Gagnrýnir kaup sjávarútvegsmanna á Morgunblaðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér verða menn að bregðast við hratt.

Ná í Ólaf og setja í bönd, og la´ta ekki lausan fyrr en hann hefur sungið alla söngva sem hlustandi er á um útrásarvíkinga og ,,félaga" í ,,monkey-businessinum"

 

Sigga Einars Heim er krafan.

Láta í járn og bíða þar til ahnn fer að syngja, um vorið og alla ,,hina" sem eru sekir.

 

Ná í sem flesta sem komu að Kaupþings svindlinu og einnig Glitnis-Byrs svindlinu.  Na´í Thor vegna millifærlsna og Sigurjón Digra.

Ekkert má hér eftir vera falið.

Milljarða hvörf bæði í bönkum og líka SPARISJÓÐUM ef marka má bre´f seðlabankastjóra til Jóhönnu.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Milljarðar úr sjóðum rétt fyrir fall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föðurást.

 

Oft er móðurástiin sögð sterkasta aflið en ég veit, að föðurástin er engu veikari þó annars eðlis sé.

 

Það eiga engir foreldrar að þurfa að standa yfir moldum barna sinna.  Það er andstætt  því sem manni finndist eðlilegt.

 

Menn læra að lifa við sorgina en barnamissir gleymist aldrei.

 

Þakka mitt barnalán óaflátlega.


mbl.is Ungur sonur Camerons látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá liggur það fyrir AUMINGJAR OG UNDIRLÆGJUR!!!!

Gylfi,  --ég tel best, að erlendir kröfuhafar eignist allt hér -- Viðskiptaráð(herra) hefur nú enn á ný opinberað sitt eðli.

 

Eðli liðleskju og hræddrar Hýenu (bið Hýenur afsökunar). 

 

Eina sem sá maður hefur til málana lagt er, að útlendingar sem gætu hugsanlega átt ,,kröfur" á okkur fengju bankana -ekki bara þa´gömlu , heldur líka nýju, semsagt liðleskjur og lyddur.


mbl.is Hætt við málssókn gegn Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna bogna nú nefið á mínum góða forna vini.

Nú veit ég, að minn kæri veit betur en vill alsekki fara gegn vinum sínum í samfó.

 

Danir vita betur

Þjoðverjar vita betur.

Portugalir vita betur.


mbl.is Lítil áhrif ESB-aðilda á yfirráð yfir auðlindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvurn sjálfan andsk.... var Davíð að gera í Sviss??

 

Allt verður okkur að óhamingju, nú er farið að hrikta í stoðum Sviss-Bankana.

Getur Davíð ekki verið heima hjá sér? 

 Bankakerfið í Bretlandi að falli komið,

Draslið hrunið í Írlandi líklega eftir skoðunarferð Davíðs á Pólóleiki þar.

Skoskir bankar hrynja líkt og domino kubbar, örugglega eftir að Davíð fór til Enverness til að skoða annað ævintýa fyrirbrygðið.

Danskir bankar komnir á hliðina, allt Davíð að kenna og bláa höndin, hefur örugglega slegið danska fjárfesta leiftursnöggt í hausinn eftir að þeir lánuðu Bónus fyrir Magasín Du Nord.

 

Haldið Dabba heima, spakir telja að hann hafi farið snöggann túr til NY og þess vegna sé hallæri á WS og bankar þar allir að liðast í sundur og Obama að gera sig kláran í bátana til björgunar Singmann og Goodmann eða hvað þessir vöndulsalar allir nú heita.

 

Setjum Davíð í farbann.  Ekki meira flakk sem hefur í för með sér enn frekara hrun erlendis.

 

Mibbó

 


mbl.is „Sviss gæti orðið næsta Ísland"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband