Bretar voru Nýlendu-þjófar og kúgarar við ekki, enda ekki hermenn sem numu hér land

 

Bretar hafa aldrei kunnað að segja satt orð.

Fyllirafturinn hann WC kom hingað til Rvíkur, þegar allt var sundur grafið vegna hitaveituframkvæmda en í munni hans vað það svo, að hann hefði bent okkur á, að nota heitt vatn til kyndingar húsa okkar.

Hattersley var rassskelltur af Matta Bjarna og niðurlægður í rökræðum við Geir Hallgrímsson þegar Þorskastríðið stóð og hann laug um ,,herskip" okkar að skjóta á ,,varnarlausa fiskimenn" breska.

 

London Times tók mjög undir með honum og lýsti nákvæmlega hvernig okkar ,,hermenn" væru miskunnlausir gegn ,,varnarlausum fiskimönnum".

Það ætti að vera við hæfi og svona til skemmtunar, að fá hann í viðtal og ná í sögulegar staðreyndir og bera saman við hans ,,túlkun" á þeim í erl. blöðum.

Það er ótrúlegt, að menn sumir beri enn virðingu fyrir þessari kúgunarþjóð sem fór ránshendi um sínar nýlendur og sýndu innfæddum fullkomna forakt.

Miðbæjaríhaldið

man Matta Bjarna í stuði við að snú a Bretann niður.


mbl.is Hinir þrjósku Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki láta svona. Þessi grein er augljóslega ekki rituð í illu. Lestu hana.

http://www.timesonline.co.uk/tol/comment/columnists/guest_contributors/article6979915.ece

Jóhann (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 00:31

2 Smámynd: Auðun Gíslason

 

12.1.2010 | 20:47

Samningar ríkisstjórnar Geirs H. Haarde fyrir hönd þjóðarinnar 10. október 2008 og 16. nóvember 2008! Þannig hófst samningaferlið!

Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave

11.10.2008

Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.

Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.

Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.

Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.

Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

16.11.2008

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík 16. nóvember 2008

Kannski ekki úr vegi, að minna á þessar samninga ríkisstjórnar Geirs. H. Haarde nú þegar ásakanirnar  dynja á núverandi ríkisstjórn.  Svona hófst í raun þessi samningaruna.  Svona var ríkissjóður skuldbundinn í byrjun þessa leiðindamáls!  Nú virðist stór hluti þjóðarinnar telja að Jóhanna og Steingrímur J. eigi sök á hvernig komið er, og þau sæta ásökunum um hin villtustu svik við land og þjóð.  Munið að Icesave-myllan fór af stóð 2006 með vilja og vitund íslenskra yfirvalda

Auðun Gíslason, 12.1.2010 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband