Dulbúin yfirtaka

Hér er sama yfirtakan og var fordæmd harkalega af VG og Samfylkingunni.  Það er auðséð, hver ræður í eþssu máli,--það er Bingi.

Ef satt er, er enn verið að gefa GGE HS og enn er skjalfestur minnihlutaeign OR í öllu bixinu.

 

Skítleg og snautuleg för þetta, ef satt reynist.

 

Nú verða mínir menn í Borgarstjórn, að kynna fyrir kjósendum ALLT sem liggur fyrir.

 

Það er ótækt með öllu, að OR afhendi eigur annarra sveitafélaga sem Morgungjöf til ,,fjárfesta" sem eru,-- enn ef marka má fréttir fjölmiðla, komnir á nokkurskonar gjörgæslu (beðnir um að tryggja enn frekar lán vegna fjárfestinga í útlöndum) hjá Landsanum.

Hér hefur Davíð enn ratast rétt á munn, þegar han talaði um suma útrás sem innrás í fyrirtæki almennings.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Hlutur OR í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband