Nú er það komið fram, sem heyrst hefur

Frá því í jan hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki um, að einhver klúbbur, sem nefndur er 180klúbburinn, hópur manna aðallega bankamanna og forsprakka þeirra elementa sem kennd eru við svona ýmislegt og nutu EKKI virðingar hér í eina tíð, hafa haft á sinni stefnu.

 

Að koma gengisvísitölunni upp í 180.

 

Það er með eindæmum , hvað þessi maður, sem nefnist VIÐsKIPTARÁÐHERRA er steindauður fyrir öllum ábendingum, sem hann og aðrir í kerfinu hafa ítrekað fengið.

EIna sem kemur upp ú r þeim góða manni er, að ekki sé ástæða til að ætla að skortsölur fari fram hér og að bankarnir standi á bak við það.

 

Gröf sem sýna einmitt að BANKARNIR standi á bak við runnið hafa verið birt og allir sem ekki eiga beinna hagsmuna að gæta sjá þetta glögglega.

 

Tími aðgerða er nú og Frakklandsforseti fer með rétt mál, þegar hann segir það kröfu almennigns, sem fær að borga reikninginn með einum eða öðrum hætti, að þetta lið verði sett undir lás og slá og hljóti makleg málagjöld, frítt húsnæði og fóður í boði fangelsismálayfirvalda.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Gengi krónunnar lækkar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr!

Skúli Sig. (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 11:14

2 Smámynd: haraldurhar

Sæll Bjarni.

   Tekið skal undir hversu Viðskiptamálaráðherra er daufur, og ekki síst í ljósi þess að hann skuli ekki vera búinn að hreinsa út úr Seðlabankanum.

   Gengisvísitalan er öruglega á leiðinn í 200 plús, og er það ofureðlilegt að gengið falli þar sem við höfum búið við viðskiptahalla mörg undanfarinn misseri, en gengi haldið uppi með okurstýrivöxtum.  Nú er svo komið að erl. fjárfestar hafa misst trúna á ísl. efnahagsundrið, og ekki síst á vanmátt og vanstjórn í peningmálum hjá Seðlabankannum.  Það gengu ekki í neina að Seðlabankastjóri landsins komi fram í sjónvarpi, og upplýsi að hann hafi skömm á þeim er hafa verið að gagnrýna sjórnarhætti Seðlabankans.  Að auki í núverandi ástandi hefur áhættufælni fjárfesta aukist, og í boði erum fjölmagir kostir til ávöxtunar fjármangs með góðri ávöxtun.

     Það eru gjaldeyristekur er okkur vantar, en með óstjórn í stjórn fiskveiða er búið að stórminnka útfluingsverðmæti sjávaraflans, auk þess búið að rústa flestum sjávarþorpum og fiskvinnslufyrirtækum á landinu.  Raforkan seld á smánarvirði.

    Að lokum ríkiútgjöld hafa þanist út og hafa hækkað úr 35% af þjóðarframl í 50% á 19 ára samfelldu stjórnartímabili sjálfstæðisflokksins, en samt kjósið þið þá alltaf og þá helst á kjörorðinu  Festa og Stöðuleiki.

kv. h.

haraldurhar, 23.9.2008 kl. 12:20

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Seðlabankastjórinn var um daginn að tilkynna að stýrivextirnir myndu lækka hratt á næsta ári og sama hefur heyrst úr öðrum vistunarúrræðum þarna við Arnarhólinn. Það er því í hæsta máta eðlilegt að erlent fjármagn í krónubréfum sé farið að hugsa sér til hreyfings aftur til heimahaganna. Þeir náttúrlega bíða ekki með hausinn í rassinum eftir því að vextirnir lækki heldur reyna að vera á undan kúrfunni.

Baldur Fjölnisson, 23.9.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Annars er einn helsti veikleiki seðlabankans sá að tveir bankastjóranna voru ráðnir árið 1863 og stoppaðir upp nokkrum áratugum síðar og þriðja staðan hefur verið eins konar förgunarúrræði fyrir aflóga pólitíkusa. Þannig að trúverðugleika stofnunarinnar hefur verið gjöreytt á skipulegan og mjög svo meðvitaðan hátt. Þar sem um gríðarlega hagsmuni almennings er að tefla þar sem gjaldmiðillinn er - ber þegar að hefja opinbera rannsókn á þessarri skemmdarstarfsemi.

Baldur Fjölnisson, 23.9.2008 kl. 13:18

5 Smámynd: Sævar Helgason

Úrdráttur úr fyrirlestri sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsi í dag varðandi vaxandi notkun á evru í íslensku viðskiptalífi

"Sjálfkrafa evruvæðing veldur ójöfnuði – og rýrir hag aldraðra

Við sjálfkrafa evruvæðingu, þar sem evran væri notuð samhliða krónunni, mundu Íslendingar smám saman missa alla kosti við sjálfstæðan gjaldmiðil, en ekki fá nema hluta þess ávinnings sem fylgdi formlegri aðild að evrusamstarfinu. Fyrir utan hagstjórnarlegan og stjórnsýslulegan vanda yki slík þróun ójöfnuð á landinu þar sem samfélagshóparnir stæðu afar misjafnlega að vígi í samkeppni um að njóta kosta stöðugrar evru. Starfsmenn í opinbera geiranum og hjá fyrirtækjum með mestöll umsvif sín innanlands mundu væntanlega fá öll laun í krónum, og standa verr að vígi en aðrir þar sem gengissveiflur og verðbólga héldu áfram að leika þá grátt meðan evru-‚elítan‘ undi við sitt evrulíf. Ekki síst væri fjárhag lífeyrisþega hætt í slíku ástandi – þar á meðal aldraðra – sem fá bætur sínar í krónum, og eiga eignir í krónum en hefðu ekki sömu möguleika og aðrir til að vinna sér inn evrutekjur."

Þetta er því miður að gerast.  Það er háalvarlegir atburðir að gerast... Á meðan er spilað á fiðlu í Seðlabankanum...efnahagur alþýðu brennur

Sævar Helgason, 23.9.2008 kl. 18:16

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Fiðluspilararnir eru, að mínu mati forráðamenn bankana og þeirra stórfyrirtækja, sem hafa enn burði til, ath1 ENN burði til, að spekulera í gengisárásum.

Aftur hefur heyrst, að tap sem þessir sömu menn verða fyrir í viðskiptum EINMITT ÁEVRUSVÆÐINU ÞEIRRA ELSKAÐA sé nú flutt hingað inn til að VIÐ BORGUM SUKKIÐ.

Bjarni Kjartansson, 25.9.2008 kl. 10:16

7 Smámynd: haraldurhar

Eur forráðamenn Seðlabankans með í þessum hópi? 

Bjarni þú verður að skilja það að óstjórn í peningamálum og ríkisfjámálum stuðlar að veikingu ísl. kr.     Það þarf að afla til að geta eytt.   Hver spilar á fyrstu fiðlu að þínum dómi?

haraldurhar, 25.9.2008 kl. 22:29

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

  1. VB.is : Íslensku bankarnir standast álagspróf FME

    Fjórir stærstu viðskiptabankarnir standast allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins (FME) sem eftirlitið framkvæmir með reglubundnum hætti. ...
    www.vb.is/frett/1/46179/islensku-bankarnir-standast-alagsprof-fme - 21k - Afrit - Svipaðar síður
  2. Landsbankinn - Vegvísir

    Álagsprófið miðast við stöðuna í lok júní 2008 og í tilkynningu FME segir að ... Álagspróf FME var síðast framkvæmt miðað við stöðuna í lok árs 2007 og ...
    www.landsbanki.is/markadir/greiningar/vegvisir/?NewsID=12807&OrderbookID=10904 - 34k - Afrit - Svipaðar síður
  3. FME.is - Forsíðufréttir

    Íslensku bankarnir standast álagspróf FME ... Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, segir niðurstöðu álagsprófsins sýna að að undirstöður íslensku bankanna séu ...
    www.fme.is/?PageID=14&NewsID=188 - 13k - Afrit - Svipaðar síður
  4. Glitnir: Fréttir dagsins

    Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi ... Margfalt álagspróf Viðmiðiðin sem notuð eru í álagsprófinu eru meðal ...
    www.glitnir.is/Markadir/Greining/Frettir/?BirtaGrein=622023 - 43k - Afrit - Svipaðar síður
  5. M5: Bankarnir standast álagspróf FME

    Vegvísir Landsbanka Íslands: Bankarnir standast álagspróf FME.
    www.m5.is/?gluggi=frett&id=55877 - 3k - Afrit - Svipaðar síður
  6. VB.is : Álagspróf og verstu mögulegu markaðsaðstæður íslensku bankanna

    Innskráning áskrifenda. Þessi síða er einungis ætluð áskrifendum að Viðskiptablaðinu. Netfang: Lykilorð: Muna innskráningu eftir að vafra er lokað ...
    www.vidskiptabladid.is/pistill/8/45301/alagsprof-og-verstu-mogulegu-markadsadstaedur-islensku-bankanna - 10k - Afrit - Svipaðar síður
  7. Fréttir/viðburðir < Sendiráðið < Íslenska < Tungumál < Denmark ...

    Íslensku bankarnir standast álagspróf FME. 15.8.2008. Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar ...
    www.iceland.org/dk/islenska/frettir/nr/5679 - 20k - Afrit - Svipaðar síður
  8. Íslensku bankarnir standast álagspróf Fjármálaeftirlitsins - mbl.is

    Íslensku viðskiptabankarnir og fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás standast allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitið framkvæmir með ...
    www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2007/08/21/islensku_bankarnir_standast_alagsprof_fjarmalaeftir/ - 41k - Afrit - Svipaðar síður
  9. VB.is : Álagspróf og verstu mögulegu markaðsaðstæður íslensku bankanna

    Þegar álagspróf Fjármálaeftirlitsins fyrir íslensku bankana var kynnt til sögunnar fyrir fáeinum árum þótti ýmsum að prófið væri strangt og alveg óraunsætt. ...
    www.fiskifrettir.is/?gluggi=frett&flokkur=8&id=45301 - 24k - Afrit - Svipaðar síður

Baldur Fjölnisson, 29.9.2008 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband