17.4.2009 | 08:58
Háðuleg útreið Flokksins í fyrstu raun.
Nú skil ég fyllilega, að Landsfundir eru til skrauts og bara upp á punt.
Þakka samfylgdina í gegnum árin og áratugina en nú er mér nóg boðið.
Ég er ekki geðlaus og því lýsi ég því hér með yfir og vil að aðrir fari að eftirdæmi mínu.
Ég mun EKKI kjósa Sjálfstæðisflokkinn í þessum kosningum.
Ég, ásamt og með Kjartani Gunnarsyni kom því til leiðar, að inn í Landsfundarályktanir var sett ákvæði um, að Auðlindir allar yrðu þjóðareign og það,--ævarandi ( um alla framtíð).
LÍjúgararnir höfðu uppi mótbárur en svo virðist, að þeir hefðu ekkert þurft slíkt, því ráðnir voru kjörnir fulltrúar Flokksins að hafa þessa grein að engu, hugsanlega háði og spotti en ekki fara að þessum vilja fundarins, sem samþykkti þetta með yfirgnæfandi meirihluta.
Farvel Frans.
Miðbæjaríhaldið
ætlar EKKI að kjósa handbendi LÍÚ á þiing.
Hef fengið mig fullsaddan af því.
![]() |
Stjórnarskrá ekki breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (62)
8.4.2009 | 09:33
Þá veit maður það.
Las þetta á AMX vefnum.
Þetta skýrir margt af framgöngu hennar í garð almennings og hvernig hún hefur talað í garð þeirra sem viljað hafa vara við núverandi(hugsanlega þáverandi) húsbændum sínum.
Nú getur maður loks sagt með fullkomlega hreinni samvisku, að allt sem frá henni kemur um okkar mál er litað HAGSMUNUM ERLENDRA FJÁRFESTA.
"Edda Rós og Ragnar ráðin á skrifstofu fulltrúa AGS
07:48Edda Rós Karlsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og Ragnar Hjálmarsson hafa verið ráðin til starfa á skrifstofu sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi."
Svona er Ísland í dag og ,,menntamenn og fræðingar okkar.
Verði okkur að góðu.
Miðbæjaríhaldið
3.4.2009 | 20:07
Það er naumast!!
Vissulega hefur þurft að rýra starfskjör starfsmanna Rvíkurborgar.
Þetta hefur verið gert áður og með enn beinskeyttari hætti hvað varðar starfshópa innan kerfisins en það var fyrir allnokkrum árum í tengslum við innleiðingu og staðfæringu kerfis sem nefnt er Starfsmat. Þar var beitt hinum breiðu spjótunum en þá heyrðist ekki múkk frá þessum félögum mínum ,starfsmönnum Rvíkurborgar, því þá var frekar gegnið í að tóna niður hina lægst launuðu og ,,ómenntuðu" þann hóp sem þeir sem nú kvarta, tala hvað skýrast niður til.
Vissulega höfum við misst umsamin launakjör. Það liggur fyrir EN menn hafa skipað sér þannig á völl, að varnir eru helst við þá sem minnst hafa og geta ekki misst nokkra aura því þá verður brestur í framfærslu þeirra og fjörskyldna þeirra.
Það er afar sorglegt, að þeir sem meira bera úr býtum, krefjast að skattar verði hækkaðir á þá sem minna fá og virðast þannig vera gersamlega slétt sama hvort enn verði gengið í vasa fátækra til framfærslu hinna sem eru ,,menntaðir" og með sterkari samningsstöðu sakir eigin mikilvægis.
Mér er freklega misboðið, að lesa þetta.
Við höfum tekið á okkur lækkanir sem eru til SKOÐUNAR með þeim hætti, að menn fylla út akstursbók, líkt og gert er víða í einkageiranum en ,,fræðingarnir" okkar vilja að það gildi um pöpulinn en ekki sig.
Mér er fullkunnugt um, að þessar aðgerðir eru vegna þess,að borgarstjórnarflokkarnir hafa skipað sér til varnar störfum og þjónustu við borgarana og er það afar gott og til fyrirmyndar hjá borgarfulltrúum allra flokka, að starfa saman að þeirri vinnu sem er fyrir hendi að verja störfin okkar, hag heimila borgarbúa og ber að þakka þá ákvörðun að fara ekki auðveldu leiðina og hækka bara álögur á alla borgarbúa.
Nóg er samt hjá núverandi ríkisstjórn í skatt-kækjum.
Svo vil ég enn þakka störf þeirra sviðstjóra og framkvæmdastjóra sviða, sem fengu tilögur frá sínu starfsfólki og VIRTU NAFNLEYND OG TRÚNAÐ við okkur um, að ekki kæmist í hámæli.
Miðbæjaríhaldið
STOLTUR starfsmaður Rvíkurborgar
![]() |
Mótmæla kjaraskerðingu hjá Reykjavíkurborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 12:26
Tækifæri til að spara verulega í rekstri flugvalla.
Við lestur þessarar fréttar kemur í hug minn, að nú sé tækifæri til, að spara verulega í rekstri flugvalla og sameina rekstur Rvíkurvallar og Keflavíkurvallar.
Margt fengist með því.
1. Sparnaður í rekstri og afísun vallarins í Rvík.
2. Mannskapur í rekstri þeirra aðstöðu sem þar er
3. Verulegar samgöngubætur í Rvík, þar sem hægt væri að þvera flugvöllinn með akbrautum til hagsbóta fyrir samtengingu Rvíkur og því stórfelldan sparnað.
4. Betri nýtingu vallarins í Keflavík og mannvirki þar sett.
5. Aukna nýtingu á nýlagðri Reykjanesbraut og því hraðari afskrifta tíma.
Margt annað mætti telja svo sem verulega minnkaða slysahættu við Rvíkurflugvöll saman ber, ef menn flytja fjarlægðir sem Pilatus Flugvélin sem fórst í aðflugi í BNA með skíðafólk hefði lennt í nágrenni Flugvallarins.
Margt margt fleira, sem vert er að taka fram en þó óþarftþar sem það liggur svo ofurljóst fyrir öllum svona meðalgreindum mönnum, sem ekki eiga þá sérhagsmuni, að vilja lenda inni í miðri borg vegna opinberra starfa sinna. :-)
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Farþegum fækkar mikið í Leifsstöð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.4.2009 | 13:33
FME ætti að loka sínum skrifstofum, því þeir eru ekki að vinna.
FME er að verða bert að því, að vernda skúrka, (kæra hugsanlega blaðamenn fyrir að upplýsa almenning um siðleysi og hugsanlega glæpi gegn þjóðinni og ríkinu EN verndar skúrkana með því, að gefa skít í reglur sem lúta að fyrirtækjunum, sem nú eru að falla hvert um annað þvert svo sem Nýsi.
Las þetta á Eyjunni:
Forstjóri Nýsis var regluvörður félagsins. Fjármálaeftirlitinu er ekki kunnugt um nein dæmi um að forstjóri sé jafnframt regluvörður, enda þótt upplýsingar um Nýsisforstjórann liggi á heimasíðu eftirlitsins.
Regluvörður á meðal annars að halda lista yfir innherja, fólk sem hefur aðgang að verðmyndandi upplýsingum félaga sem gefa út verðbréf, skráðra félaga, og hafa auga með viðskiptum þeirra. Hann þjónar í raun sem nokkurs konar innra eftirlit fyrirtækisins.
Fyrirtæki eiga að tilkynna um regluvörðinn til Fjármálaeftirlitsins. Þetta er gert til að eftirlirlitið geti metið hvort hann sé nógu sjálfstæður í störfum sínum.
Furðuleg ,,vinnubrögð eru þegar unnið er en þetta er þegar ekkert er unnið og frekar tekið í spil á vinnutíma eða það lítur þannig út fyrir mönnum.
Miðbæjaríhaldið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.4.2009 | 09:40
Á hvers vegum og fyrir hverja vinnur FME?????
Hér er enn á ferðinni dæmi um, að lögfræðingastóðið og dómskerfið allt er á mála hjá ofurolíörkunum og stórþjófunum.
Ef það varðar við lög, að upplýsa almennig um, hver stal af þeim lífssparnaði og hækkaði vísvitandi alla skulda-höfuðstóla á þeim, er ekkert annað að gera en BREYTA LÖGUNUM þannig, að það sé skylt að upplýsa þjóðina um glæpsamlega eða siðlaust athæfi í fjármálaheiminum.
Að leggja annað á borð fyrir okkur nú eftir það sem á undan er gegnið er ekkert annað en gróf móðgun við þjóðiina og allt sem heiðarlegt og gott er.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Brutu þau bankaleynd? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 12:27
Vonanadi lesa ráðamenn þessa grein.
Í Fréttablaðinu í dag er grein eftir Hagfræðing Hudson nokkurn, sem er með afar skiljanlega og trúverðuga grein um hvað er að baki styrjaldarinnar um eigur þjóða.
Alheimsstríð lánardrottna Stríð geisar í heiminum, byggt á skuldafjötrum. Saklaus fórnarlömb, einstaklingar jafnt sem heilu hagkerfin, eru leidd inn í skuldahringekju sem þau sleppa ekki úr.EvrópusambandiðTil að sjá samhengið verðum við að skoða hvað er að gerast í "Stór-Evrópu" nútímans. Eins og komið hefur fram í viðskiptafréttum hafa fyrrum Austantjaldsríkin lent í gríðarlegum erfiðleikum á leið sinni inn í Evrópusambandið á síðustu árum. Sú skoðun fer vaxandi í þessum ríkjum að Evrópa og Lissabonsáttmáli hennar hafi, í stað þess að hjálpa ríkjunum að byggja upp og hagræða í efnahagskerfi sínu, sleppt bönkum sínum lausum á þau. Bankarnir líti einungis á þessi ríki sem nýja lántakendur sem hægt er að skuldsetja - ekki til uppbyggingar í iðnaði eða innviðum samfélagsins, heldur með veði í fasteignum og auðlindum sem þegar voru til staðar. Það er eftir allt saman fljótlegasta leiðin til að græða og fjármálageirinn hefur ávallt lifað á skammtímahagnaði."Óþægilegur sannleikur"Það er einfaldlega engin leið fyrir ofurskuldsettar þjóðir nútímans að "vinna sig út úr skuldum" með því að prenta peninga. Með því hrynur gengið og svo mikið fjármagn og fasteignir renna úr höndum þegnanna til lánardrottna að til verður nýtt, póstkapitalískt hagkerfi, án framleiðslu/neyslu, með minnkandi sjálfstæði, jafnrétti og sjálfbærni.Tekjur eru fleyttar ofan af með því að hneppa einstaklinga og þjóðfélög í skuldafjötra samsettra vaxta. Lánardrottnar vita sem er að skuldin fæst aldrei greidd, nema með sölu eigna. Þannig eru eignir hreinsaðar upp í vaxtagreiðslur sem engan enda taka. Markmiðið er að hreinsa upp allan mögulegan tekjuafgang.
Bandaríkin eru skuldugasta þjóð heims og mun aldrei greiða erlendar skuldir sínar. Ríkissjóður mun halda áfram að gefa út skuldabréf í skiptum fyrir vörur, þjónustu og raunveruleg verðmæti frá Kína, Japan og öðrum lánardrottnum, þar til þær þjóðir sem sitja uppi með pappírana átta sig á hvers kona svikamyllu þau eru flækt í. Eins og Adam Smith sagði í riti sínu Auðlegð þjóðanna: "Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar." Mögulegt er að þvinga litlar þjóðir á borð við Ísland til að borga, þar til engar eignir eru eftir. En stórlaxarnir eru stikkfrí. Þeir stjórna alþjóðastofnunum, skrifa söguna, stjórna fjölmiðlaumfjöllun og laga til námsefni háskólanna, allt í eigin þágu.
FjármálastríðÞjóðir vita hvenær þær verða fyrir árás óvinaherja. Þær verjast til að koma í veg fyrir að óvinirnir hernemi lönd þeirra og heimti af þeim skatta. Slíkur hernaður virðist við fyrstu sýn fjarri fjármálaheiminum. Allir vita að óvinaherjum er ekki boðið í heimsókn. Þeir eru ekki boðnir velkomnir þó þeir lofi að hjálpa til við uppbyggingu efnahagsins með því að leggja vegi eða byggja brýr (til að auðvelda skriðdrekum þeirra að komast um), virkja fallvötn til að flytja út orku (og halda eftir hagnaðinum), hótel og heilsulindir fyrir sig og aðra útlendinga (og stinga leigu og öðrum verðmætum í eigin vasa) eða setja upp flóknar tölfræðigreiningar til að stjórna hagkerfinu í eigin þágu.
Bandaríkin, Bretland og AGS kalla kröfur sínar og skilyrði kapítalisma. Í raun er verið að koma á fjármálakerfi sem endar í skuldaánauð, ekki lýðræðislegum kapítalisma. Samsettir vextir þeirra eru að leggja heilu þjóðirnar í rúst. Sem dæmi um fáránlegan þankagang þeirra má taka dæmi af íbúð. Hvort myndir þú heldur vilja eiga 20 milljóna króna íbúð skuldlaust, eða 60 prósent af sömu íbúð með uppblásið markaðsvirði upp á 50 milljónir? Í síðara tilfellinu ættir þú 60 prósent af 50 milljónum, eða 30 milljónir, en aðeins 20 í því fyrra. Um allan heim hefur tekist að sannfæra fólk um að síðari kosturinn sé dæmi um "myndun auðs". Það sem gleymist er að af skuldsettu íbúðinni þarf að greiða vexti. Sú upphæð er 1,2 milljónir miðað við 6 prósent vexti. Íbúðin er meira virði, en ber mun meiri kostnað, sem er jú tekjur fyrir fjármálafyrirtækin.
Leiðin út úr vandanum
Besta leiðin fyrir þjóðir út úr vandanum er verja eigin hagvöxt umfram hag lánardrottna og hafna því að eini kosturinn sé að þjóðin greiði þær skuldir sem fáeinir einstaklingar hafa steypt sér í. Hagur hagkerfisins í heildina er grundvallaratriði. Markmið lánardrottnanna er að auka völd sín, með því að setja greiðslu skulda í forgang. Því verr sem hagkerfi standa, því sterkari verða lánardrottnar. Þetta er leiðin að efnahagslegu sjálfsmorði sem endar í skuldaánauð þegar kreppan harðnar. Lánardrottnar um allan heim færa nú niður skuldir í samræmi við lækkandi fasteignaverð. Aldrei hefur verið betra tækifæri til að taka afstöðu til þess um hvað standa á vörð - óyfirstíganlegar skuldir eða framtíð íslensks samfélags? Munu stjórnvöld verja þegna sína fyrir efnahagslegum afræningjum, eða munu þau færa þeim íslenska hagkerfið á silfurfati?Það er stóra spurningin.Höfundur er sérfræðingur í alþjóðafjármálum, hefur verið ráðgjafi Hvíta hússins, bandaríska innanríkisráðuneytisins og varnarmálaráðuneytisins og vinnur að tillögu að nýrri skattalöggjöf fyrir Bandaríkin. Þetta er fyrri greinin af tveimur eftir Hudson sem birtast í Fréttablaðinu. Í þeirri síðari, sem birtist innan fárra daga, beinir hann sjónum sínum að Íslandi.Vá hvað ég er honum sammála.
Hér er sett í letur það sem ég kunni ekki í einni grein.
Þetta hef ég sagt og sett fram í allmörgum bloggum, greinum og ræðum.
ENGINN HLUSTAR, síst svonefndir ráðamenn, sem segja svo, maybe I shuld have!!!!!!!!!!!!!!!!
mibbó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2009 | 11:54
Loksins gerir einhver eitthvað skynsamlegt.
Þó svo að Hagsmunasamtökin fari með þetta fyrir dómstóla, er ég óviss um, svo vægt sé til orða tekið, að dæmt verði GEGN sukkliðinu og sjálftökuliðinu í Bönkum, sjóðum og þar sem la´nin voru veitt.
Sporin hærða verulega í þeim efnum.
Ég treysti þeim í það minnsta ekki.
Samningur milli aðila ætti að vera þannig, að annar geti ekki fiktað í forsendum þeirra EFTIRÁ!!
Svo er ekki og mörgum finnst í lagi að svindla á þeim sem þurfa lán til húsbygginga og rekstrar fyrirtækja.
Sigríður Ingibjörg stjarna Samfó í Rvík í síðasta prófkjöri hélt hjartnæma ræðu um ,,sparifjáreigendur og gamlar konur sem settu aurinn sinn til geymslu og allt, nema það vantaði mærðarvæl um börn í hitakössum eins og Búskurinn gerði vegna innrásar í Írak.
Þessi svikamylla sem sett er upp í bönkunum og Lífeyrissjóðum (sem fóru flestir flatt á að lána í ERl mynt á erlendri grund, aðgerð sem hækkaði Höfuðstóla hér á starfandi fólki sem ber uppi allt og sjóðina líka) er að ganga frá ungum börnum mínum og þá er það að verða afar PERSÓNULEGT HJÁ MÉR
ÁÐUR ÞEGAR VERÐBÓLGAN OG VERÐTRYGGINGIN TÓK EIGUR AF MÉR, VAR EKKI UM ANNAÐ AÐ GERA EN SETJA Í AXLIR OG VINNA MEIRA.
NÚ HEF ÉG EKKI TÍMA TIL AÐ HJÁLPA MÍNUM BÖRNUM NÓGSAMLEGA. ÞVÍ ER ÞeTTA PERSÓNULEG BARÁTTA OG MÉR ER Í LÉTTU RÚMI, HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ NÁ ÁRANGRI!!!!!!
Miðbæjarihaldið
![]() |
Hagsmunasamtök heimilanna undirbúa málsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2009 | 10:29
Hinn alvitri álitsgjafi í peningamálum.!!!!!!!
Ég var að skoða DV vefinn og sá þar þetta:
,,Ég hef aldrei á 25 ára starfsferli mínum séð jafn lélegt og illa skrifað plagg, sagði Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, í samtali við DV eftir að hafa rennt augum yfir trúnaðarskjal Seðlabankans. Í skjalinu er dregin upp afar dökk mynd af stöðu íslensku bankanna fyrir liðlega ári. Svartsýni málsmetandi bankamanna og sérfræðinga virðist hafa komið seðlabankamönnum að einhverju leyti á óvart.
Ómögulegt er að sannreyna efni trúnaðarskjalsins þar sem engin nöfn einstaklinga eða banka koma þar fyrir. Það er dagsett 12. febrúar á síðasta ári og því á ábyrgð Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, og víst þykir að um einskonar minnisblað Davíðs, sem fór að minnsta kosti í hendur forsætisráðherra og fjármálaráðherra, sé að ræða.
Það er ljóst að íslensku bankarnir, Kaupþing og Glitnir alveg sérstaklega, hafa stefnt sér og það sem verra er, íslensku fjármálalífi, í mikla hættu, jafnvel í hreinar ógöngur, með ábyrgðarlausri framgöngu á undanförnum árum.
Þannig er tekið til orða í trúnaðarskjali Seðlabankans frá 12. febrúar í fyrra, sem nú hefur verið birt opinberlega að frumkvæði RÚV.
Í skjalinu segir frá fundum seðlabankamanna með sérfræðingum í bankaheiminum og embættismönnum í London snemma árs í fyrra. Tekið er fram að viðmælendur seðlabankamanna hafi verið gjörkunnugir viðskiptum við Ísland, verið vel undirbúnir og iðulega haft gögn fram að færa. Meðal viðmælenda voru háttsettir menn frá matsfyrirtækinu Moody's og næstæðsti maður Citigroup í heiminum.
Ég hef aldrei á 25 ára starfsferli mínum séð jafn lélegt og illa skrifað plagg, sagði Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, í samtali við DV eftir að hafa rennt augum yfir trúnaðarskjal Seðlabankans. Hann bendir á að erfitt sé að sannreyna það sem fram komi í skjalinu þar sem engin nöfn viðmælenda eða banka komi fram, ekki einu sinni þeirra seðlabankamanna sem sóttu fundina í London. Sigurður segir hróplegt ósamræmi milli stöðunnar eins og henni sé lýst í minnisblaðinu og þess sem síðar gerðist. Hann bendir á að engir tapi innistæðum sínum í Kaupþingi, staða peningasjóða og lífeyrissjóða hafi verið með ágætum í bankanum og ekki horfur á að króna falli á íslenska skattgreiðendur vegna innistæðureikninga í Kaupþingi. "
Nú er svo, að mér er ekki vant að vera mjög flökurgjarnt EN þetta kom róti á vömbina.
Hvernig í ósköpunum GETUR það verið, að sumir leikendurnir í Hrunadansinum og því partíi sem á undan gekk, séu nú orðnir að aðal álitsgjöfum og spekúlöntum endurreisnarinnar, líkt og yfirmenn greiningadeilda og þá sérlega Landsans heitins??
Nú er vitnað sem aldrei fyrr í Sigurð Einars.
Svo verður Finnur auðvitað ofarlega á blaði með Óla í Samskipum og er þá ,,Björnebandet" nánast fullskipað.
Manni flökrar við aðgerðaleysi og umkomuleysi stjórnvalda, bæði núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar.
Gera ekkert þegar Bretar setja á okkur hryðjuverkalög, segja ekkert þegar IMF neitar, að áeggjan og vegna þrýstings frá ,,VINAÞJÓÐUM Í NATO" að afgreiða lán eða umsókn okkar fyrr en mál alótengt ríkissjóði væri afgreitt, MEÐ SÉRSTÖKUM OG FYRIRSKRIFUÐUM HÆTTI!!
Nú eru menn svo aumir, að þeir eru að hugsa sig um AÐ GEFA EINHVERJUM SEM TITLA SIG ,,KRÖFUHAFA" Kaupþing með tilheyrandi veðum í Sjávarútvegi og landbúnaði!!!!!!!!!!!!!!!!
Það eru FÖÐURLANDSSVIK OG EKKERT ANNAÐ!!
Lyddur eru svona menn sem vilja laus verðmæti þjóðar til friðþægingar braskara og áhættu,,fjárfesta".
Gaman væri að sjá hvernig svipuðum ,,kröfuhöfum" væri mætt í Hvíta húsinu, nú þegar milljarða hundruðir eru afskrifaðir í bönkum sem eru að falla sem strá fyrir slátturmanni í BNA.
Með kveðjum friðar og rólegheita
Mibæjaríhaldið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2009 | 12:45
Skelfilegt slys.
Hvað hefði gerst, hefði þessi flugvél verið á lokastefnu að Rvíkurflugvelli??
Hvað hefðu margir drepist á jörðu niðri?
Flugleggir að brautum Rvíkurvallar eru óforsvaranlegar.
Ekki er mjög langt síðan, að vél stakkst niður rétt við Miklubrautina.
Það var EKKI Flugmanni að kenna.
Hvað eru ásættanlega mörg líf sem tollur fyrir áframhaldandi veru hans í Miðborg Rvíkur?
Miaðbæjaríhaldið
vill að menn spari peninga í kreppu og loki Rvíkurflugvelli.
![]() |
Sjö börn létust í flugslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)