20.3.2009 | 10:05
Yfirgripsmikil vanþekking.
Mjög ér ég sáttur við, að við erum EKKI á svipuððum slóðum og BNA.
Það styttist mjög í uppþot með tilheyrandi mannslátum í BNA.
Hér deyja ekki menn á götum borga -úr ófeiti-- á meðan hinir vagga um í spiki af hamborgaáti.
Hér eru menn ekki settir á göturnar ef brestur heilsa eða framfærsla.
Hér eru flestir læsir sem hafa til þess andlega getu.
Hér er bara örfáir svívirðilegir fjármálaglæpamenn.
Nei mitt góða fólk, við erum ekki á svipaðri braut og BNA.
![]() |
Obama: Ekki sömu leið og Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2009 | 09:06
Brown líttu þér nær.
Nú ætti Brown að setja á Bretana hryðjuverkalög eða hvað?
Getur verið, að ,,vinir Brown-Darling" séu þjófar og svikarar? Þar hæfir á skel kjafti.
Svo er Brown enn við það heygarðshorn, að dæla meir og meir af skattpeningum í þessa hít glæpamanna.
Þjóðverjar og Frakkar ætla að boykotta þær tillögur Breta að dæla enn meir í hítir braskara og að ,,greiða kröfuhöfum" sínar braskkröfur upp í topp.
Hér eru ísl vandræði í hnotskurn.
Sumir vilja borga bröskurum í topp en aðrir vilja sýna þeim fingurinn þar sem lánin voru í raun ekkert annað en gambl og háspennu lán. (kíkið á vextina sem krafist var miðað við venjulega vexti á millibankamarkaði.)
Mibbó
![]() |
Barclays stakk milljörðum undan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2009 | 08:58
Mjór er mikils vísir.
Það er sorglegt, að lesa úrtölubloggið um þessa frétt.
Hér er ungur athafnamaður, að koma á formlegu sambandi AFTUR við Mayo Clinic, eitt virtasta heilbrigðisfyrirbæri í BNA.
Áður og fyrrmeir var Landakot, undir stjórn Bjarna Jónssonar heitins yfirlæknis, í samstarfi við Mayo, sem kennsluspítali og þjálfunarstaður fyrir ísl lækna.
Þaðan kom afar mikil kunnátta sem þjóðin græddi betri heilsu á og verulega lækkaðan kostnað(daggjöld greidd St Jósepsspítalanum Landakoti var oftast undir helming á við það sem greitt var til Landsans)
Ég fagna samstarfi við Mayo og vona, að þetta úrtölu og þvermóðsku lið fái ekki hljómgrunn hjá núverandi stjórnvöldum.
Að vísu er það ofætlan. þar sem þau stjórnvöld telja kappnógan tíma til að samþykkja lög um bann við dillibossum og klofkaupum en EKKI og ALS EKKI lögum um afnám bankaleyndar.
Semsé menn eru of uppteknir við að forklúðra öllum möguleikum okkar til að skoða góðar LAUSNIR í atvinnumálum.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Gætu orðið til 300 störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2009 | 11:52
Grænir fingur.
Svo spretta allskonar ,,gróðurhús" upp út um allar trissur, jafnvel á næðingnum á Esjumelum.
Segið svo,a ð við Íslendingar séum ekki ráðagóðir.
Ef ekki er hægt að flytja inn, þa´bara rækta allskonar neysluvörur.
Mibbó
![]() |
Matjurtagörðum fjölgað í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 12:39
Fáheyrð heimska og aulaháttur í skipan manna til starfa !
Ef þetta verður látið fram fara eru öll fyrri ummæli núverandi stjórnarflokka um vanhæfi hinna og þessara ómarktæk og auðsæ lygi.
Hræsni og yfirdrepsskapur, verður eftirmæli um þessa stjórn, ef heiðarleiki verður að leiðarljósi.
Mibbó
![]() |
Tengjast eigendum og kröfuhöfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2009 | 12:21
Hver eignast Egilshöllina og fl??
Nú er svo komið, að allt sem ég sagði um, að flækja saman opinberri og einka starfsemi, hefur fram komið.
Af fréttinni má draga þá ályktun, að dótturfélagasúpan sé einnig að fara í gjaldþrot, annað er óforsvaranlegt, gagnvart fjölskyldum í vanda, þar sem gengið er á allar eigur manna.
Vonandi finnst eitthvað upp í kröfur í þessi skýjaborga-félög.
Verst er, að R-listinn, sem útvegaði allskonar sérmeðferð fyrir Nýsi, svosem lóðir og annað, eru stikk frí í umræðunni.
set he´rna það sem eitt sinn var á Mbl.is
Nýsir með þriðjung í Sæblómi
Samningar hafa tekist milli Nýsis hf., B.P. Skipa útgerð ehf., eigenda franska fyrirtækisins Seafood Export og fjárfesta í Marokkó um að auka hlutafé Sæblóms úr 4 milljónum kr. í 374 milljónir kr. Eftir þá aukningu á B.P. Skip útgerð meirihluta í félaginu og Nýsir tæplega þriðjungs hlut. Nýr framkvæmdarstjóri félagsins er Björgvin Ólafsson.
Dótturfélag Sæblóms, Fleur de Mer, gerir út 3 fiskiskip og starfrækir nokkur fiskvinnsluhús í Laayoune í Marokkó. Skipin eru Quo Vadis (áður Örninn KE), Carpe Diem (áður Álfsey VE) og Que Sera Sera (keypt frá Skotlandi). Félagið ræður yfir miklum aflaheimildum sem það leigir af samstarfsaðilum sínum í Marokkó. Helstu afurðir félagsins eru makríll og sardínur, samkvæmt tilkynningu.
Tilkynning til Kauphallar Íslands
Mibbó
![]() |
Nýsir fasteignir gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 14:21
Enn og aftur klapp á bak fésýslumanna.
Enn og aftur eru dómarar landsins að dæma gegn þjóðinni og með útrásar-græðgisvæðingar liðinu.
Mönnum fer svona fljótlega að svima yfir óendanlegu langlundargeði yfirvalda í garð svikamylla allskonar.
Grunur um,a ð eitthvað stórfengilega sé rangt haft við, styrktist til muna, þagar FME neitaði að afhenda skýrslur um rannsóknir á ætluðu misferli.
Árni í Kraganum, varði þau lok mála mjög eftirminnilega í Silfri Egils um helgina.
Hann vill að bröskurunum í Evrópu og víðar, verði greitt upp í topp og að FME liggi á upplýsingum um fjárplógsmenn.
Hann er auðvitað ánægður með þennann dóm, þar sem verið er að fjalla um aura sem urðu til, vegna strits almúgans í Hafnafirði og nærsveitum og afrakstri þess strits í Sparisjóði Hafnafjarðar og líklega líka Kópavogs.
Helvíti er farið að snúast við í roðinu, baráttutröll Krata.
Eðpa er hann bara tröll hann Árni Kraga-Krati?
Mibbó
![]() |
Karl Georg sýknaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2009 | 13:48
SEGJUM FLUGSTOÐUM UPP LEIGU Á LÓÐ OG AÐSTÖÐU ALLRI FYRIR FLUGVÖLL.
Segjum þeim strax upp allri aðstöðu og leyfum fyrir flgvöll, þar sem EKKERT OG ÉG ENDURTEK EKKERT af því sem þeir sögðu um flughryfingar og annað flugtengdu í aðdraganda kosninga um flugvöllinn forðum, (þá flugmálastjórn) --= sömu menn á lægri launum þa´) hefur verið brotið daglega og ef fundið er að við þa´er svarað af HROKA.
Burt með þetta HROKALIÐ ALLTSAAN OG LOKUM VALLARÓMYNDINNI
Við lendingu lenti flugvél Flugleiða (flugfélags Íslands) í veseni með gæsir í hreyflum og á vængbörðum. nokkrar skemmdir urðu og vélin frá í nokkurn tíma.
HVAÐ HEFÐI GERST EF VÉLIN HEFÐI VERIÐ Í FLUGTAKI?????
![]() |
Segja upp samningi við Slökkviliðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.3.2009 | 11:12
Vissi fyrr en Karl sjálfur.
Þetta vissi ég vel, að SF hentu frá sér góðum og gegnum trillukarli sem einnig fæst við sálnaveiðar.
SF vill miklu frekar aðila á borð við rauðkuna á Ísafirði. Þar hæfir skel kjafti og heilindin á pari.
Ólína leitar víða fanga, svo getur Bergsteinn vinur minn staðfest, bæði í ,,fræði" vinnu og öðru.
Óska ég Karli V (eða fimmta eins og hann var tíðum nefndur í MR) til hamingju með ákvörðunina og vona að þetta verði honum, fjölskyldu hans og þjóðinni til heilla.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Karl V. til liðs við Frjálslynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 17:30
Farið bara til Evrópu, við sjáum ekkert eftir ykkur.
fqr vel frans og kom ekki til baka aularnir ykkar, þið hafið nóg gert nú þegar
![]() |
Vilja halda í átt að Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)