12.3.2009 | 15:01
Helvíti er konan kurteis.
Hún þarf að átta sig á því, að það er algerlega óþarft, að vera svona kurteis við þetta lið.
Við viljum ekkert með þetta skítapakk hafa, sem búið er að rýja börn okkar inn að skinni og leyfir sér svo að tala niður til þjóðar sinnar og segja að menn ættu að líta í eigin barm!!!
Nei Jóhanna mín, hér eru kurteisisræður og hefðir sem þú brúkaðir í Flugfreyjustarfi þínu algerlega óþarfar og í raun óviðeigandi.
Hér ber að tala íslensku og brúka orð eins og þjófar, skíthælar, lyddur undirlægjur, heybrækur og baktjaldamakkarar.
Ef þú átt ljótar orð í fórum þínum er einmitt rétti tíminn til að dusta af þeim rykið.
ÖLL þjóðin hlustar og vill að þetta skítapakk, verði tekið úr sínum Armani fötum og tjargað og fiðrað.
Miðbæajríhaldið
hefur fengið rúmlega upp í kok af svona siðblindingjum, sem rænt hafa og ruplað eigum þjóðar sinnar með árásum á gegni Krónu og þannig hækkun á VERÐTRYGGINGASTUÐLI og höfuðstól lána venjulegra brauðstritara eins og barna minna.
![]() |
Græðgin varð skynseminni yfirsterkari" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Erlendur er í algerri afneitun og heimtar enn frekari búsifjar á þjóðina.
Frjáls gjaldeyrismarkaður núna væri ekkert annað en rothögg á nánast öll heimili í landinu.
Langar þessa menn virkilega í þannig þjóðfélag, að annarsvegar eru þeir ríku (sköllóttu) í Armani fötum og hinsvegar lýður í tötrum??
Sorry það er ekki 1400 og eitthvað
Vonandi halda þessir fávitar kjafti fyrir kosningar, því fólk festir þetta lið við Flokkinn minn. Sem er í afar mörgum tilfellum ósatt.
Siggi Einars,
Ólafur Ólafs,
Finnur Ingólfs
Geir Magnússon Esso
Finnur Geirsson
Hreiðar Kaupþings
Bjarni Glitnis
Jón Ásgeir
Einar löffimann (baugur)
Pálmi Haralds Fonsari
og margir fleiri eru Frammarar að því er ég best veit EKKI Sjálfstæðismenn.
Erlendur er að því er virðist gersamlega veruleikafirrtur og úti á þaki.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Lækka vexti þegar í stað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2009 | 13:42
Froðusnakkar.
Þetta vælandi lið ætti frekar að lít í eigin barm (þ.e. Kaninn). Bandaríkjamenn drepa árlega margfalt meir af hval og ,,spendýrum sjávar" en öll hin ríki veraldar samanlagt.
Að vísu eru þeir við veiðar á öðrum ,,fiski" en smáhvelin flækjast með.
Þetta lið ætti frekar að hugsa til annarra spendýramorða,sem framin eru af borgurum þeirrar þjóðar og með samþykki þings þeirra og áeggjan Obama o fl.
Að vísu ganga þau spendýr á tveimur fótum og tala flest.(að vísu ekki börnin sem eru enn ómálga)
Þar er verk að vinna fyrir þessa hjarta-blæðandi vælukjóa alla saman.
Mibbó
telur það ekkert koma Kananum við, hvort við nýtum hvala stofna hér við land eða drepum til að vernda fiskistofna okkar.
![]() |
Obama styður hvalveiðibannið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 12:02
BÖMMER maður minn.
Ég sá fyrir mér ,(meyjuna) Jóhönnu leidda að hvítum hesti og reista í söðul íklædd kjól sem félli vel að vinstri hlið hennar. Fána í hendi og skjöld við fótskör sína.
SKRRRRATSSS.
Platan hikstaði og engin Jóka.
Jóhanna verður bara --Heilög Jóhanna af Húsbréfafelli.
Fellið sem setti flest sveitafélög á höfuðið .
Vonandi setur hún ekki Ríkissjóð líka á hausinn.
Magnús bóndi og bróðir hans hann Örn segja svo oft
Biiiiilaððð og Hauuuuuusin
Svoleiðis verður um Ríkissjóð ef ,,afsakið" Jóhanna verður mikið lengur þar. Breiðavíkur afsakið sorry verður hennar bautasteinn.
Fáir komu til að votta virðingu sína Jóhönnu.
Mibbó
![]() |
Enginn mætti í blysförina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2009 | 13:25
Miklar hjálparhellur.
Hundar sem hafa verið þjálfaðir til vinnu með lögreglu og hjálparsveitum, hafa ítrekað komið fólki til bjargar og er þessi hundur einn margra, sem náð hafa langt í sinni grein.
Við sem ,,farnir erum í hundana" skiljum heitar tilfinningar til þessara ferfættu vina okkar.
við skömmumst okkur ekkert fyrir að sýna tilfinningar okkar við fráfall þeirra.
Vonandi skilja hinir, sem ekki ,,eru farnir í hundana" að væntumþykja er ekki bara fyrir eina tegund spendýra, heldur eru afar margar tegundir færar um, að sýna væntumþykju og hjartahlýju.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Lögregluhundur kvaddur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2009 | 14:32
Hvað er í gangi????
Annaðhvort er þetta lið gersamlega óhæft vegna hræðslu og aumingjaskapur við ákvörðunartöku eða á mála hjá einhverjum elementum sem ég ekki get gert me´r grein fyrir hverjir eru.
Það er nú að verða æ ljósara, að þessi opinberu appíröt eru EKKI til verndar ísl hagsmunum, heldur miklu frekar einhverra óskilgreindra aðila, innlendra eða erlendra, nema hvortveggja sé.
Ég lofa mönnum, að ef þetta væri hún Litla Gunna sem steikti Kleinur og gaf ekki upp til skatts eða greiddi ekki Vsk af allri upphæðinni væri hún lögnu svifin í grjótið og búið að gera kröfu í bú hennar með öllum kostnaði.
Þetta ofurlið í löffa búningum getur ekkert er ófært að taka ákvarðanir í efnum sem eru flóknari en búðahnupl.
Ekki nema von, að Hæstiréttur vísi frá dómi öllu sem kemur nálægt Séð og Heyrt liðinu, nú síðast Jónsa Bæjó.
Miðbæjaríhaldið
gersamlega bit og búin að missa alla virðingu fyrir svona skítakerfum.
![]() |
Óvíst að gögn að utan nýtist nefndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2009 | 10:53
Hverra erinda eru þessir menn að ganga?
Mér er hulið, hvernig forkólfar verkamanna vilji að við göngum inn í ESB og hnýtum okkur enn þyngri bagga í slíku sambandi.
Hér hefur ekki verið andmælt, að hagstjórnartæki ESB eru fyrst og fremst Atvinnuleysi sem þenslujöfnunartæki.
Ekki hefur að heldur verið mótmælt, að við inngöngu bindum við okkur bagga hvað varðar meiri útstreymi fjár en innstreymi.
Ekki fengjum við ívilnanir í vinnuaflsmálum, né tilskipunum um Fjórfrelsi. Það hefur sannast á okkar skinni, að slíkt ,,frelsi" er fárra til að hagnast af en ekki Litlu Gunnu og manni hennar Litla Jóns.
Ekkert hvetur menn inn í þetta Krataskömmtunarkerfi, hvorki öryggi (Írland, Spánn, Ítalía og A-Evrópulöndin) bættur hagur útflutningsreina, né nokkuð það sem sagt er eða gert er í því skítlega barberíi.
Því er ekki annað að álykta en, að ASÍ forystan sé hér að gana fram í þjónkun við húsbændur sína í SF.
Brjóstumkennanlegt að sjá annars óvitlausa menn verða að augabragði.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
ASÍ: Ný ríkisstjórn fái umboð til ESB viðræðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2009 | 09:08
Hér gildir, að ríkið yfirtaki þá, líkt og bankana.
Ef annað á að gilda um Sparisjóðina en bankana, eru menn komnir á hálan ís. Þar gæti orðpið erfitt að fóta sig og stutt er á milli stuðnings og samsektar.
Ef þær sögur eru sannar, sem sagðar eru um fjármálalega fimleika sem stundaðir á að hafa verið í því ferli, sem að stofnun Byrs og sameiningagerðum hjá SPK og vestfirskra sjóða, liggur á borðinu, að ekki á að koma nálægt þessu með aðstoð, heldur yfirtöku og síðan skoðun á ÖLLUM gerðum og gerningum stjórna og stjórnenda.
Hér ríður á, að ekkert má gera, sem gæti orðið tortryggilegt á síðari stigum.
Taka drasliið og senda inn hóp manna með reiknivélar og skoða allt bixið. EF grunur verður um lögbrot, ná í viðkomandi og setja í LANGT gæsluvarðhald.
Þjóðin heimtar að eitthvað verði gert og það STRAX
Miðbæjaríhaldið
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 12:11
Hver biðst afsökunar?
Mig langar að setja hingað inn, svar sem ég setti á blogg Gunanrs Axels Axelssonar.
Þar fer hann fram á frekari afsökunarbeiðnir frá íhaldinu.
Hér er pistillinn:
Bjarni Kjartansson, 3.3.2009 kl. 12:05
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 11:59
Sitthvað Jón eða Séra Jón.
Samkvæmt ætti þessi maður að fara rakleitt í mál við Frakka vegna netbanka franskra banka sem eru nú komnir í þrot.
Frakklandsforseti var hinnsvegar á því, að reglur gerðu ráð fyrir að EINUNGIS væri ábyrgð á þeim upphæðum sem væru í tryggingasjóðum bankana.
Þetta sýnir svo ekki verður um villst, að ESB klúbburinn er klúbbur algerra forréttindahópa meðal þjóða.
Stóru þjóðirnar geta hagað sér eins og þær vilja gegn litlu og hinir sem eru í störfum á vegum sambandsins standa í , að skrökva fyrir ,,húsbændur sína" líkt og leiguþý gerðu hér í denn.
Afar óyndislegt fyrirbæari og þeir seme ru að vilja okkur þarna inn eru auðvitað svipaðrar gerðar og embættismennirnrir sem standa ljúgandi um reglur og framfylgni þeirra.
Annaðhvort er Frakklandsforseti að bulla eða þessir starfsmenn sem þora ekki að tala gegn Darling og Bröwn.
Eða eins og stendur á bol nokkrum sem ég sá mann ganga í .
dear, wat is the colour of english shit?
It is Brown --Darling
Mibbó
![]() |
Aldrei vafi um skyldu vegna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sumt sem þú hér setur fram er réttmætt og satt.
Við sem vöruðum við þeim stórfelldu hættuspilum, sem fram fóru allt frá setningu Ólafslaga hér í denn, að ekki sé talað um Kvótalögin og inngöngu í EES bullið, náðum EKKI markmiði okkar, sem var að sníða ísl. þjóðfélag að gömlum gildum heiðarleikans.
Það voru svo margir ,,faglegir" bullukollar á leið okkar.
1. Gylfi Þ ásamt og með Jóhannesi Norðdal, suðu saman bull og vitleysu, sem auðvitað gat ekki staðist í lifandi hagkerfi, sem var að vaxa, --Verðtryggingar hugmyndir.
2. Kvótakerfið gat heldur ekkert orðið annað en uppeldissvæði og æfingabúðir í falsi lygi og svindli. Samt voru það ,,mætir menn" í stétt Hagfræðinga og allskonar ,,faglegir" gaurar, sem suðu þetta bull saman og helltu yfir þjóðina.
3. EES samningurinn GAT ekki gegnið fyrir okkur, til þess vorum við of fámenn og með of mikið af náttúruauðlindum og velsæld, sem var eftirsóknarverð í augum umheimsins, sést best á sprengingu í innflutningi fólks. Við gátum ekki opnað okkar kerfi eins og við gerðum án stóráfalla.
Við trúðum að men væru heiðarlegir en þar gleymdum við einni kröfunni til okkar um varkárni, því að við hefðum mátt vita, að Höfuðsyndirnar Sjö eru samar við sig, hvort sem er í Wall Street eða Kaupþingi.
Það er plagsiður á okkur, að verða Kaþólskari en Páfinn í ölu sem nýjabrum er á og hægt að halda málþing um og bulla nógu helvíti mikið um. Þess vegna förum við á taugum, þegar menn tala um ,,með faglegum hætti" og setjum á fót allskonar ,,stofur" og hvað þetta nú allt heitir.
Við Sjálfstæðismenn HEFÐUM betur vakað lengur og verið betri við þjóð okkar í því samhengi, að koma betur í veg fyrir kratísk stórslys.
ÞAR LIGGUR SEKT OKKAR og auðvitað að hafa ekki stoppað Gróðapunga í okkar flokki á græðgibraut þeirra.
Hinsvegar er sekt Samfylkingarinnar að viðbættu því sem að ofan er ritað um ,,Kratakerfin" er að þeir gegnu milli bols og höfuðs á DÓMSKERFINU með varðstöðu í Fjölmiðlamálinu og árásum á alla sem sóttu Baugsmál.
Það eitt og sér er næg ástæða hrunsins, því öngvir sem hefðu átt að vara við eða sækja til sakar´svindlara, ÞORÐU ÞAÐ EKKI af hræðslu við fjölmiðla og Borgarnesræður.
Miðbæjaríhaldið
verið lengi á pólitísku sviði á Íslandi þó ætíð a´bak við tjöldin.