Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
6.11.2007 | 09:59
Ef OR borgar svona vel, hvað þá REI?
Það verður mjög svo áhugavert, að skoða hvað REI borgar í laun æðstu stjórnenda nú í ár.
Tæplega er Bjarni á neinum hungurlaunum. Svo er, --ef marka má big-business leikþættina í haust,-- annað sem fylgir og í takt við stóru strákana.
Ljóst er, að menn verða að vera á varðbergi vegna Græðginnar, þegar menn telja sig ekki vera undir ljósi Upplýsingalagana og telja sig geta svarað út í hött eða með hálfsannleik.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Launin þola ekki dagsljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2007 | 09:12
Köttur í sekknum???
Það er sýnt, að betur hefði verið hjá Vilhjálmi, að skoða sinn hóp og setja þá menn í nefndir, sem bestu þekkingu hefðu á hverju máli.
Þetta blasir nú við, þegar horft er til starfa Júlíusar Vífils í OR stjórninni. Hann virðist finna á örskotsstundu hverja brotalömina af annarri í málatilbúnaði sem er um sameiningu REI og Geysir Green.
Þessi þekking hefði betur verið nýtt ÁÐUR en til samninga var gengið.
Svo er algerlega brilljant að hlusta á hann Júlíus draga fyrrum R-lista, sundur og saman í háði, vegna einkaréttarsamninga um Matvöruverslana rekstur í Grafarvogi.
Bragð er af, þá barnið finnur og nú hefur Borgarstjórinn Dagur B látið hafa eftir sér, að NÚ væri rétt, að skoða svoddan einkaréttarsamninga.
Hér sést, að kennimark góðra leiðtoga er, að þekkja hóp sinn og geta notað bestu menn á þann póst, sem best hentar. Láta ,,röðun" á lista liggja milli hluta, heldur líta til kunnáttu og færni. Slíkir kostir reynast stundum svo léttvægir í Prófkjörum, hvar kyn og annnað sem ekki kemur málunum nokkurn skapaðan hlut við, ráða ferð og kjósendur raða upp nokkurnvegin ,,Fléttulista".
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Verðmat Geysir Green var hækkað um 6,7 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2007 | 11:52
Svo er talað um ofdekraða unglinga!!!!!
Var að lesa yfir svör Orkuveitunnar vegna spurninga fróms Umboðsmanns Alþingis.
Svörin eru að mínu fávísa mati, gersamlega út í hött og jaðra við óskammfeilni.
Setjum svo, að eitthvert stórfyrirtæki okkar, stofnaði dótturfélag. Allt gott með það, þar til stjórnendur þess, ákveddu, að renna saman við annað félag og sameinað félag væri þannig, að eignarhlutur fyrrum húsbænda (Stóra fyrirtækisins) yrði svo rýr, að í minnihluta yrðu.
Telja menn virkilega, að stjórnendur slíks dótturfyrirtækis, væru lengi á launaskrá hjá viðkomandi stórfyrirtækis? Telja menn virkilega að slíkur gerningur yrði ekki sagður algert ómark?
Ég sé í anda eigendur Straums og Baugs sitja undir þvílíkum gerningum, án þess að reisa rönd við.
Ef marka má viðbrögð þessara stjórnenda OR og REI, líta þeir á kompaníið sem sína óskoruðu eign og ég hef ekki mjög mjög lengi lesið annan eins hroka í svörum þjóna almennings.
Hér er enn komin afar rík ástæða til þess, að allt heila bixið, verði aftengt og menn látnir skoða atvinnuauglýsingar.
Lítilsvirðing á eign almennings, bæði hér í Rvík og í þeim sveitafélögum, sem nú eru hlutaeigendur í OR er svo óltrúleg, að með eindæmum er.
Ég skil ekkert í kosnum fulltrúum okkar, að þeir láti svona löguðu ósvarað með hressilegum aðgerðum.
Það þarf stundum að þora að vera maður og grípa í taumana.
Það þarf í uppeldi baldna unglinga og nú er ljóst, að svo þarf líka í umgengni við ráðna starfsmenn almennings.
Miðbæjaríhaldið
ber virðingu fyrir eigum almennings og þeim aurum, sem ,,hið opinbera" fær úr heimilisbókhaldi fjölskyldna Herra og Frú Útsvarsgreiðenda
![]() |
Telja að ekki þurfi samþykki eigenda vegna stofnunar dótturfélaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2007 | 09:38
Hér gæti verið matarhola.
Hundstungan er næm og fátt ætt, fer framhjá hungruðum Úlfi.
Eru menn virkilega EKKERT búnir að læra af viðbrögðum almennings í REI/ Geysir Green gríninu?
Ef ráðamenn eru svona hræðilega tregir, fer að renna á mig tvær grímur um framtíð minna afkomenda hér á mínu elskaða Fróni.
Almenningur hefur rekið stofnanir og fyrirtæki, í því skyni, að afla þekkingar og færni í beislun orku og þarmeð til aukinna þæginda fyrir afkomendur sína.
Það hefur allsekki verið ætlan manna, að skúbba þessu öllu í djúpa vasa manna, sem síðan geta selt í hendur útlendra manna, komandi kynslóððum íslendinga til einskis nota, né þæginda.
Hér ber að stinga við fótum, koma þeim skilaboðum til kjörinna fulltrúa, að kaupmennska með þessa hluti verði ekki liðin.
Furðulegt hve Samfó-liðið er ginkeypt fyrir veislur, og stórkapitalískar ráðstefnur og fundi, nuddandi olnbogum við flotta og ríka fólkið.
Rifjar upp sögu af sverum businessmanni og stórkaupmanni (heildsala)hér um 1960. Hann var inntur eftir því, hvort honum ói ekki við nýrri stjórn Vinstrimanna. Hann svaraði að bragði,--,,nei minnkæri, það er nefnilega miklu miklu ódýrara að múta Kommum en helvítis Íhaldinu, ef það þá tekst yfirleitt að bera fé á þessa forpokuðu þjóðernissinnuðu -íhaldsmenn"
Gæti verið sannleikskorn í þessu enn ????
Miðbæjaríhaldið
vill halda í það sem hald er í fyrir afkomendur sína.
![]() |
Rætt um að háeffa ÍSOR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2007 | 10:55
Svona gerðist ekki þegar NATO sá um hálkuvarnir
Ef niðurstöður rannsóknar á flugatvikinu, reynast leiða í ljós annmarka á hálkuvörnum, er ljóst, að við höfum EKKI efni á, að reka tvo flugvelli á SV horninu.
EF hér er um sparnað í notkun á ,,Koníakkinu" að ræða, liggur ljóst fyrir, að menn verða að leggja af annann flugvöllinn hér syðra og einheda okkur í að reka sómasamlega einn flugvöll, svona bara gengur ekki.
Svo er annað eftirtektarvert, flugvélunum var beint til Egilstaða en EKKI Rvíkurvallar!!!
Hvað um áróðursefni flugvallarvina um, að Rvíkurvöllur væri ,,varaflugvöllur fyrir Keflavíkurvöllinn??
GEtur verið, að flugumdjón hafi farið að skráðum reglum um varaflugvelli á Íslandi? Og þar sem Rvíkurvöllur er ekki skráður sem varavölllur fyrir stórar vélar, var farið að reglum og vélunum beint á eina völlinn sem er með þessa skráningu hérlendis?
Athyglivert mjög. Fer furðulega lítið fyrir umfjöllun fjölmiðla um eþtta flugatvik og hvað það segir okkur um kostnað við rekstur tveggja flugvalla innan 50km radíusar.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Segja bremsuskilyrði á flugbraut ekki í samræmi við upplýsingar úr flugturni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2007 | 11:01
Vel heppnað umhverfisslys?
Ég ósla mönnum til hamingju með stækkunina og raunar einnig með framtak og elju manna við að koma Bláa Lóninu í svona flottan rekstur.
Samt er það stórfurðulegt, að allir mæri þetta lón. Jafnvel gallharðir umhverfissinnar fara með gesti þangað og dásama umhverfið og nátttúruöflin sem eru að verki.
Samt er ekki framhjá því litið, að tilurð þess er vegna virkjunar gufu úr iðrum jarðar fengnum með borunum og að lónin eru ,,óafturkræfar" breitingar á umhverfinu, nokkurskonar umhverfisslys!!
Það er nefnilega svo, að það er valkvæmt, hvað menn setja sig upp á móti.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Salarkynni baðstaðarins við Bláa lónið tvöfaldast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2007 | 16:00
Hagsmunir lítt metnir.
Úttektin sem gerð var um hugsanleg flugvallarstæði, leiddi í ljós, að beinn fórnarkosnaður af því, að hafa flugvöllinn á þessum stað, FYRIR UTAN ÖLL ÞAU UMFERÐARMANNVIRKI sem hann teppir gerð á, er vægt reiknað 3.500 milljónir á ári.
Auðvitað á að senda flugvallarnotendum þennann reikning, hvern þeir auðvitað geta jafnað sín á milli.
ÞArna er eini staðurinn á landinu, hvar alvöru Háskólasamfélag getur hugsanlega blómstrað.
En auðvitað skiptir þetta Möllerinn engu máli, frekar en þeir milljarðar sem sóað er í Héðinfjarðargöngin og tengingar við þau. Fyrir utan svo óorðið sem svoddan ráðslag kemur á allar áætlanir í samgöngumálum hinna dreyfðu byggða.
Miðbæjaríhaldið
telur furðulegt, hve hljótt er um þingmenn okkar Reykvíkinga í svoddan málum
![]() |
Samgönguráðherra vill ekki færa Reykjavíkurflugvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2007 | 15:41
Herre Gud bevar os
Jæja þá, er Möllerinn að fá öll völd á keflavíkurvellinum?
Þaðerbarasvona!
Semsagt, akkurat.
VOnandi finnur hann aukavöllinn, sem auðveldlega mætti nota til innanlandsflug.
Iss, afsakið, það er ofætlan, miklu nær honum, að henda einhverjum milljörðum í ,,Samgöngumiðstöð" sem hægt væri að troða niður í kok Rvíkinga, með góðu eða illu.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Rekstur Keflavíkurflugvallar færður til samgönguráðuneytisins um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2007 | 08:48
Svo erum við að gera grín að Kína ofl.
Þetta er nú ekki fysrti og verður líklega ekki sá síðasti vísindamaðurinn, sem fær að kenna á vendi rétttrúnaðarins.
Vísindamenn, sem leituðu snefilefna eftir cyklon b í fangabúðunum frá fyrra stríði, fengu ekki birtar niðurstöður sínar í viðurkenndum vísindaritum og sumir misstu vinnuna við virta háskóla.
Fornleyfafræðingarnir sem grófu upp mannvistaleyfar í Kaliforníu hvar beinin sýndu fram á, að ,,langhöfðar" hefðu verið þar fyrir um það bil 6000 árum, fengu einnig að kenna á sömu rétttrúnaðarsvipunni.
Listinn er langur og allstaðar ber að sama brunni, það sem fer á skjön við ,,viðteknar skoðanir" og þægilegar, er bannfært.
Svo eru SÖMU forvígismenn að tala niður til kínverskra stjórnvalda um skoðunarkúgun og þöggun ,,vísindagreina".
Hver dæmi sjálfan dig og láti SAMVISKUNA RÁÐA.
Það er stundum erfitt en gott markmið að stefna að.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Hætt við fyrirlestur vísindamanns eftir að hann lét umdeild ummæli flakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 11:50
Miklir menn erum við ............!!!!
Las á bloggi Björns Bjarnasonar Dóms og Kirkjumálaráherra, að gjafmildir menn séu á ferðinni í Nýju Jórvík.
9.000.000.000,00 á um það bil 5 árum til orkumála þar. Hver veitt umboð fyrir svonaloforðum?? Hverjir eiga að borga þetta?
Er það hugsanlegt, að útræasin se´til þess ætluð, að fátækir 3ja heims íbúar greiði fyrir stórkarlalegan lífstíl okkar ofurríku manna?
Taka ber hér fram, að þessi fundur var með Bill Clinton og að sumir fara í nokkurskonar trans, þegar í púlt er komið og myndavélar beinast að viðkomandi.
Þetta er sko ekkert fyllerís-hjal, þetta ersett fram af allsgáðum mönnum en svona lítilræði, eins og UMBOÐ er aukaatriði.
Semsagt, OR mun afhenda, Samkvæmt einokunarsamningi við REI / GGE þessi ,,sambönd" og útrásarverkefni í Djíbútí.
Ekki nema von, að forseti Lýðveldisins segi að það sé kominn tími til, að íslendingar geri upp við sig, hvort þeir vilji alþjóðlegan mann á vetvangi stórra mála eða bara svona til heimabrúks.
Þetta þurfti Vigdís forseti minn ekki að spyrja. Hún vildi vera okkur sameiningatákn og láta gott af sér leiða svona í forbifarten, við góðar gerðir hér innanlands.
Undirritaður vorkennir því fátæka fólki, sem við tekur.
Hefði frekar viljað, að aurarnir hefðu verið notaðir til að bora eftir köldu og góðu drykkjarvatni íbúum til blessunar.
Miðbæjaríhaldið
gersamlega ofboðið