Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
23.1.2008 | 15:24
Ó Ó það verður að leyfa sárreiðum að sefa sitt hugarangur einhverstaðar.
Mikið skelfing er þetta orðið þreytt hjá vinstra-liðinu. Það virðist sem öngvir muni nokkurn skapaðan hlut af því sem þau gerðu og eða sögðu á sínum ferli.
Fáir virðast fara í kistu minningana eða ráðfæra sig við samvisku sína,-ef þau hafa einhvrja,-áður en þau úttala sig um ,,hina".
Þetta er leiður ávani og ekki til eftirbreytni yngri pólitíkkusum.
Á myndinni he´r með fréttinni er mynd af ,,Bríet" valtara einum miklum, á þeirra tíma mælikvarða. Er ekki bráðsniðugt, að mála appíratið bleikt og hafa þann lit á í tilefni af aldarminningu þáttalila í borgarpólitíkkinni?
Femmurnar væru svosem hrifnar af því eða hvað. Viðurnefnið á valtaranum var ekki í virðingarskyni á sínum tíma, jafnvel ókurteist og banalt.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Sjálfstæðismenn gagnrýndir á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2008 | 11:49
Ef svo, þá er framtíðin ekki björt
Ef marka má orð Halldórs ásgrímssonar, er framtíð Framsóknarflokksins í Rvík, ekki par fín.
Bingi er að hanns mati ,,framtíð Framsóknarflokksins í Rvík" Ekki eöfundast ég nú út í Framsóknarmenn hvorki í þátíð eða framtíð, sérlega eftir þessi ummæli fyrrum formanns þeirra.
Um stjórnmálamenn er ýmislegt hægt að segja hvað varðar heilindi við ,,samstarfsmenn" sína.
Ef það væri línulegt, væri Einar Oddur á öðrum endanum en Bingi á hinum.
Svona einfallt er þetta.
Gárungarnir segja, að faðmlag Alfredo og Binga hafi verið svona varkárt af hendi Binga, þar sem hann settti hendurnar svona á síður Alfredo. Hann einfaldlega þorði ekki lengra inn á bak honum, þar sem mörg sár og djúp voru eftir allskonar bitvopn, illa gróin og sár. Vildi með engu móti hrófla við þeim, þau gætu hafa opnast.
Miðbæjaríhaldið
ekkert sár vegna ,,framtíðar" Framsóknar
![]() |
Ómakleg framganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2008 | 13:34
Grafalvarlegt mál, ef satt er.
Við lestur þessarar fréttar, rennur manni kalt vatn milli skinns og hörunds. Ef þetta er virkilega satt, að álagið sé nú um 480punktar og allt varð snældu vitlaust, þegar álagið komst upp í um 200 punkta í haust, er hér ekkert annað á ferðinni en rekstrarerfiðleikar fyrirsjáanlegir.
Hér verða menn að fá svör frá útrásarsnillingunum. Ef um er að ræða fjárglæfra, sem að er látið liggja (Skuldabréfavafningar) og ósannindi frá stjórnendum (tilkynningar í lok nov,-sýndarmennska) eru hér svo stórkarlalegt klúður, að langt þarf að skima, til að fá hliðstæðu í ísl fjármálastarfsemi.
Nú eru menn að missa út úr sér setningar, sem eru í hrópandi ósamræmi við það sem var aðal umræðuefni í sumar. Þá var talað fjálglega um ,,dugnað og framsýni" ísl. fjárfesta. Nú er talað um að ,,björgunarferðin sé hafin" til bjargar Icelander sem er eitthvað sem eftir er, eftir að búið er að kljúfa og selja út úr gömlu ,,Flugleiðum" allt sem slátur var í.
Í tilvitnaðri frétte r talað beint út úm, að Kaupþting banki sé að draga hina bankana með sér í fallinu og virðist sem viðmælandinn sé afar sár yfir þvi að svo þurfi að vera en þar sem þetta eru bankar í sama ríki sé það skiljanlegt. Látum svo vera en eru þetta ekki menninrnir sem nú eru hvað borinbrattastir um að gera upp í Evrum, þar sem Krónan sé of sveitó og því ónothæf?
Vonandi eru stjórnendur og eigendurnir ekki ´bunir að eyða þeim peningum,s em þeir hafa rakað saman á síðustu árum og því litlu að kvíða fyrir svona venjulega brauðstritara eins og okkur sem hingað inn pikka.
Miðbæjaríhaldið
krefst að fjármálaráðherra láti gera úttekt á stöðu mála og frysti eigur þessara víkinga til tryggingar greiðslum á hugsanlegu hruni K(G)B banka.
![]() |
Tryggingarálagið í hæstu hæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2008 | 12:12
Les ég rétt? Höfðu tveir þeirra gert þetta áður?
Ef rétt er, að tveir hinna grunuðu hafi gerst sekir um árás á Lögregluna áður, er hér grafalvarlegt mál. Hvers vegna eru þeir ekki löngu löngu komnir til síns heima?
Þetta er farið að ganga út fyrir allan þjófabálk. Mér er næst að telja, að við verðum, að koma aftur upp vegabréfaeftirlit.
Síðan er athugandi, að herða til muna allt eftirlit í grennd við Miðborgina og leita þeirra leiða, sem þekktar eru af virkni. Það er ólíðandi með öllu, að Miðborgin breytist í einhverskonar búlluhverfi og nokkurskonar ,,Rauðljós hverfi"
Ég sjálfur tel einsýnt, að afgreiðslutími vínveitinga í og við Miðbæinn, skuli fara að svipuðum reglum og tíðast gilda í næsta nágrenni æðstu stofnana erlendra, semsagt, að óheimilt er að veita vín eftir kl 22,00 Þetta hefur gefist vel í DC og víaðr.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Ráðist á lögreglumenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2007 | 11:07
Með Þökk og jafngóðum óskum um gæfuríkt ár.
Nú ber að þakka það sem er liðið, fara yfir hvaðeina sem vel hefur verið gert og vona að velgjörðamenn fái maklegt fyrir, þó síðar verði.
Líta yfir öxlina og hyggja að, hvers er að minnast og hvers maður saknar og HVERSVEGNA.
Hyggja að þeim, sem huggðu flátt og iðjuðu í samræmi við það. Vonandi fá þeir makleg málagjöld, líkt og hinir sem vel sáðu.
Ég þakka forsjóninni, að hafa fengið alla þessa yndislegu daga í félagsskap góðra manna, bæði innan fjölskyldu, vina, vinnustað og ekki síst í félagsstörfunum. Ég er sannanlega lukkunar pamfíll, krossaður barnsláni og með lífsförunaut, sem er engri lík, bæði að Guðasgáfum og að ekki sé nú talað um olinmæðina, sem hún ber í þverpokum gagnvart mér. Stundum held ég, að hún hafi samið Æðruleysisbænina, svo polróleg er hún yfir mínum mörgu yfirsjónum og fjarvistum, vegna vinnu, áhugamálum og annars, svona uppáfallandi.
Ég sé eftir mörgum samferðamönnum, sem nú ganga ekki lengur vegi Veraldar, heldur hafa tekið tímann úr sambandi og þurfa ekkilengur dagatöl, né klukkur. Vona að þeirra sé róin og réttlatlega útdeilt til þeirra laununum.
Vil minnast sérstaklega eins vinar, sem fór Himnaförina af háu fjalli vestur á Fjörðu. Einar Oddur var þannig maður, að maður saknar hans af svo mörgum ástæðum.
Heyri ekki í honum, nema í minningunni,- verð ekki vitni af því, að umræðunni sé vippað á gólfið, þannig að alllir megi skilja. Nýt ekki lengur samveru með honum í félagststörfum bæði í pólitikk og víðar.
Margs er að minnast og þakka.
Með ósk um gæfuríkt ár til lands og sjóvar.
Miðbæjaríhaldið
23.11.2007 | 12:13
Réttur maður á réttum stað.
Júlíus Vífill er auðsjáanlega réttur maður á réttum stað og er þarna komið í ljós, að það hefði verið affarasælt fyrir Vilhjálm, að leita innan síns hóps að manni sem kynni að umgangast og verjast klækjum peningamanna.
Þarna fara góðir drengir, þar sem Júlíus og Kjartan eru. ´Láta ekkert vaða yfir sig með blakkingum og þöggun. Ákvæði um trúnaðarskyldur í þessum Stýrihóp er aðuvitað afar furðuleg, þegar þau snúa að stjórnarmönnum í OR. ÞAð er furðulegt, að stjórnarmenn fái ekki allar upplýsingar um, hvað er verið að véla um, eigur borgara Rvíkur og annarra sveitafélaga, svo sem Suðurnesjamanna og jafnvel Hafnfirðinga.
Ánægjulegt að sjá, að kjörnir fulltrúar af D-listanum séu nú að herða róðurinn fyrir okkur greiðendur orku og fasteignagjalda.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Krefjast stjórnarfundar í OR hið fyrsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2007 | 12:57
Dulbúin yfirtaka
Hér er sama yfirtakan og var fordæmd harkalega af VG og Samfylkingunni. Það er auðséð, hver ræður í eþssu máli,--það er Bingi.
Ef satt er, er enn verið að gefa GGE HS og enn er skjalfestur minnihlutaeign OR í öllu bixinu.
Skítleg og snautuleg för þetta, ef satt reynist.
Nú verða mínir menn í Borgarstjórn, að kynna fyrir kjósendum ALLT sem liggur fyrir.
Það er ótækt með öllu, að OR afhendi eigur annarra sveitafélaga sem Morgungjöf til ,,fjárfesta" sem eru,-- enn ef marka má fréttir fjölmiðla, komnir á nokkurskonar gjörgæslu (beðnir um að tryggja enn frekar lán vegna fjárfestinga í útlöndum) hjá Landsanum.
Hér hefur Davíð enn ratast rétt á munn, þegar han talaði um suma útrás sem innrás í fyrirtæki almennings.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Hlutur OR í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2007 | 13:13
Græna bylting Flugstoða ohf!!!!!
Já það var nú auðvitað kominn tími til, ða fækka nokkuð þeim fermetrum, sem eru enn grænir þarna og svo er jafnfurðulegt, að Þyrluþjónustan faí ekki að athafna sig, þrátt fyrir mótmæli íbúa í Litla Skerjafirði.
Ekkert var tekið mark á okkur sem búum við hinar brautir vallarómyndarinnar, þar mega flugför athafna sig allan sólarhringinn, án nokkurra hafta að því er virðist ÞAR SKIPTA ENGU MÁLI ALLIR SAMNIGNAR VIÐ BORGARYFIRVÖLD ekkert er hlutstað á þau yfirvöld, þar sem Flugstoðir telja sig að því er virðist yfir slíkt hafin.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Bílastæðum við Reykjavíkurflugvöll fjölgað um helming |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2007 | 12:53
Hvar hefur þetta verið staðfest?
Einhvernveginn er það svo með mig, að þó svo að Björn Ingi eða einhver annar, sem mikið á undir einhverju (að eigin áliti) segi eitthvað, þurfi það í raun að vera heilagur sannleikur.
Me´r er einhverra vegna ekkert tamt, að trúa því sem Framsóknarmenn í klípu segja. Það hefur svo oft komið fram síðar.
En auðvitað GETUR þetta verið satt en líklega hefur Geir ekki skoðað plöggin neitt betur en Vilhjálmur og tekið útskýrirngar hans trúanlegar, líkt og Vilhjálmur gerði með útskýrirngar vinar síns Hauks.
EF ÞETTA ER á annað borð satt og rétt frá sagt.
Það er svo klént að bera á móti því sem sagt er í tveggja manna tali.
Miðbæjaríhaldið
Efahyggjumaður, sérstaklega þegar pólitíkkusar í vanda eiga í hlut
![]() |
Björn Ingi segir að forsætisráðherra hafi vitað um samruna REI og GGE |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2007 | 11:32
Ætti að vera skyldulesning fyrir kjörna fulltrúa.
Ræða Davíðs Oddssonar er hárnákvæm greining á ástandinu og afar upplýsandi að lesa hana.
Hvert er raunvirði þymissa fyrirtækja, sem hér eru fyrirferðamikil á markaði?
Hvert er raunverulegt andlag hlutafjár, sem gengur kaupum og sölu hér á markaði?
Úrdráttur Mbl. ú r´æðunni er góð en ræðan enn betri og klárlega að bestu manna yfirsýn rituð.
Enn hvatt til varkárni.
Miðbæjaríhaldið
![]() |
Reglur í bókhaldi teygðar töluvert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |