Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

VAr hann Siggi ekki að segjast ekki þurfa péníng??

ÞAð eru ekki svo margir dagar síðan að hann Siggi Einars var að segja Geir Haardee að hann þyfrfti ekkert péníng og þeir gætu bara verið með álagið í hæstu hæðum, hann vantaði ekkert aur.

 

Er ekkert að marka fréttaflutninginn EÐA Sigga Einars????

 

Miðbæjaríhaldið

getur ekki litið á það sem jákvætt, að menn vanti fyrr fé en yfirlýsingar þeirra við Forsætisráðherra gefa tilefni til.


mbl.is Kaupþing selur skuldabréf fyrir 1.675 milljónir dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksns þorir einhver að benda á það augljósa

Ef skoðað er, hvað sagt er í þessari grein og tilmælum OECD ættu menn virkilega ða hrökkva við.

 

Gæti verið, að einokun í kennslu sé ekkert nema vandræði og að aurarnir nýttust betur ef samkeppni gæti verið um ,,góða" kennara??

 

Tilmæli um, að KÍ lati af miðstýringu og gæslu lægsta samnefnarans.

 

Miðbæjaríhaldið

telur oft verlega góðum kennurum misboðið með útþynningarstefnu, bæði í námsárangri, sem og kjörum þeirra.


mbl.is Niðurstöður PISA vonbrigði að mati OECD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grein um bullið eftir fagmann!!!!!!!!!!!

Bendi bloggurum að kíkja í Mogga gamla í dag.

 

Þar er ekki bara áhugaverð grein eftir fagmann í bankaviðskiptum, heldur afar skörp og skorinorð lýsing manns sem er frjáls og öllum óháður,  NEMA SINNI SAMVISKU.

 

Hvet alla til að lesa með athygli og hyggja að, hvað í raun stendur á blaðsíðunni.

 

Skýrgreining á Fjárfestum og bröskurum/gamblerum, er sérlega to the point.

Miðbæjaríhaldið

 

gersamlega bit


Gæti hafa gerst í Rvík

Svona lagað getur hæglega gerst við Rvíkurflugvöll.

Flugför fara af ,,trakki" sínu mjög oft og láta flugmenn vélar sínar svona,,líða" í sveig í fullu klifri langt út af leyfðri ,,braut"  Mér hefur, sem einkaflugmanni og íbúa þarna í námundamun, að flugmenn vera afar kræfa, að hengja rellurnar á mótorinn og lát þær svona líða yfir Skólavörðuholtið og raunar víðar.

Ef menn missa mótor í klifri yfir Holtunum, er ekkert að gera annað en að vonast til að hitta götu vel og lenda EKKI á bíl eða gangandi vegfaranda.

 

Miðbæjaríhaldið

Hlakkar til að flugvallarómyndin fari úr mýrinni.


mbl.is Þrír létu lífið í flugslysi í íbúðarhverfi í Los Angeles.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið nú að grafa!!!!!!

Það kemur ekki til nokkurra mála, að hrófla við eða herða að rekstrarskilyrðum Íbúðalánasjóðs.

Það kemur ekki til nokkurra mála, að Lífeyrissjóðir okkar verði notaðir til þess, eins, að gera örfáum ,,stjórnendum" -------sem voru á því er þeir kölluðu ,,alþjóðleg markaðslaun" bankastjóra til að réttlæta ofurlaun og græðgi.  En eru auðvitað nú, að fá niðurstöður úr MATI ERLENDRA VINNUVEITENDA á þeirra eigin getu, sem er í þá veru, að sömu erlendu hugsanlegu vinnuveitendur íslensku snillingana, setja þá á par og borð við bankastjóra lítilla ítalskra sveitabanka og enskra ,,byggung" firma.------- kleyft, að mjólka enn frekar unga fólkið okkar til langrar framtíðar og elta okkur hin niður í kistuna okkar sex fet niður!!!!!

 

Nei ungu menn, hyggið frekar að því, af hverju þetta lið er nú í þessum kröggum og innið eftir því, hvort ekki hafi veri farið eitthvað á skjön við reglur þá bankarnir voru seldir í hendur þessara fjárglæframanna, sem þeir virðast vera í augum ykkar, þar sem þið teljið ljóst, að þeim þurfi að hjálpa uppúr þeirri holu, sem við blasir nú.

Við eldri Sjálfstæðismenn, sem höfum talið eðlilegt, að standa vörð um hag unga fólksins og þeirra sem aðstoð þurfa vegna sérstakra aðstæðna, viljum koma því til ykkar, að ekkert réttlætir það, að Ríkið hlaupi undir bagga með sjálftökuliðinu, sem haldið hefur vöxtum meir en fimmföldum á við Evrópu til okkar minnstu bræðra og systra, til þess eins að þeir fái mýkra í ból sín.

Ekkert réttlætir eftirgjöf eða mjúklega meðferð á þeim sem flogið hafa að hætti Íkarusar og talað um leið afar niðrandi um þa´menn í okkar forystu, sem hvöttu til varkárni og hófstillingar í öllum bokkaskap.

Ég man vel hvernig þeir sem á undan ykkur komu og í forystu míns ástsæla Flokks voru, ypptu ÆTÍÐ og ÆVINLEGA Litla Jóni og konu hans Litlu Gunnu.

Bjarni Ben lagði mikið á sig í varnarbaráttu fyrir meðal-Jóninn í íslensku umhverfi.  Frelsi eins mátti aldrei verða helsi annars og aulahátt stórbokka átti EKKI að taka út á skinni venjulegs brauðstritara.  Þetta marg marg heyrði ég hann segja (eða eitthvað í þa´veru) á mörgum fundum og einnig heima hjá foreldrum mínum.  Einar Oddur, Matti Bjarna, Davíð Oddson Geir Hallgrímsson og listinn væri langur, --vildu temja mönnum hófsemi, lítillæti og vara menn við DRAMBI.

Sumir fengu illyrmislega að finna fyrir því, að viðhlæjendur stórbokka eru í hlutfalli við auraráðin og því sýndu menn þeim fylgilag, þó ekki opinberlega, sem fóru gegn foringjum okkar.  Því er nú svo, að miðin eru að eyðast, venjulegt fólk að sligast undan VAXTAOKRI og síðasta haldreipi þess fólks er, að segjast vilja fara í Evrópusambandið, hvar ekki eru slíkar álögur og afarkostir.  Tilbúnir til að afsala sér auðlindunum, sem eru hvort sem er ónýtar úr höndum braskara.

 

Nei ungu menn, þetta er þvert á þá SJÁLFSTÆÐISSTEFNU, SEM ÉG NAM UNGUR.

Gamalt vestfirskt máltæki sagði;  Þá verður að svíða sem undir míga"  svo mun, ef undirmigan er af eigin tilverkaði en ekki á sett af okrurum, líkt og stundum er raunin hér á landi voru og löffaklíkan margfaldi höfuðstóla með sjálftöku og síðar aðstoð dómstóla.

 með kærri Flokkskveðju

Miðbæjaríhaldið

hnuggið yfir greinarskrifum þeirra ungu manna, sem það hafði nokkra trú á, að gætu verið merkisberar Flokksins.

 


mbl.is Brýnt að grípa strax til aðgerða vegna bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líta auðvitað til sveitahéraða Ítalíu.

Ef marka má Ruv, þá er allt lok og læs hveð varðar lán til ísl. banka.

Sumsé, ekkert þarf að banka.

Þrátt fyrir gott mat á greiðslugetu og þan þoli okkar banka, eru þeir flestir settir á par við sveitabanka á Ítalú og svona Byggjung" félög í Bretlandi.

Þetta er nú svo, altso,--er þa´komin viðmiðun á launum útrásarmanna og stjórnenda okkar banka og fyrirtækja, út í hinum stóra Markaðs-heimi?????????????????????????

 

Sumsé, þarna er komið viðmið í greiðslum til ofurkláru verðbréfaguttana og löffagengisins í kringum þetta allt saman.

Hvar skyldi vera hægt að fá að vita, hvernig launakjör stjórnenda litlu sveitabnakana á Ítalú er háttað???????

Miðbæjaríhaldið

bara spyr svona og veltir fyrir se´r. 

Altso þannig


mbl.is Uppsagnir hafnar í bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vorar hvort sem mönnum líkar betur eða verr.

 

Nú er sá tími sem er hvorki né, hvorki algert skammdegi, né beinlínis Vor í lofti.

Ögn bjartara þegar venjulegum vinnudegi lýkur, fyrr bjart útivið.

Pólitíkin er jafn furðuleg og lengi hefur verið, spinndoktorar spinna og snældur þeirra humma.

Nú er mikið notast við fréttir af einhverju sem ekki er enn orðið.  Fall Krónunnar, frost á fasteignamarkaðinum, gjaldþroti tiltekinna fyrirtækja og allskonar dagslát önnur.

Ef að sé og ef að mundi

átta skott á einum hundi??

Spinnararnir vilja spinna mönnum úr og í embætti, virðingastöðum og svo grípur ljósvakinn þetta allt og tekin eru viðtöl við allskonar ,,fræðinga" sem hafa hitt og þetta ,,á hreinu" ----í það minnsta ef tekið er mið af því, hversu oft er talað við viðkomandi. 

Jú hitt og þetta bendir nú til,,altso, sjáðu til, EF þetta gerist og hann fer ekki að ráðum MÍNUM um lúkningu málsins, ÞÁ....................

Og svo verður talað við annan ,,Sérfræðing" á morgun eða bara eftir hádegi, það er svo ofsalega mikið að gerast,  ----,,í þessum töluðu orðum".

Svo er boðað til Blaðamannafundar og blaðamenn beðnir að yfirgefa væðið, Áður en fundarefnið er mætt og fljótlega eftir að hópurinn var nærri allur farinn í burtu.

Þetta eru ,,menntaðir menn í Stjórnmálafræðum" og ,,Fjölmiðlafræðum"  sér eru nú hver ,,vísindin" á þeim bæjunum.

Þeir ætla að hækka áburðinn mjög mikið og fara þannig gegn Vorinu.

Þetta þýðir að við verðum að bera skarna á tún okkar og harka af okkur lyktina.

Þarf endilega að vera skítalykt af stjórnmálum?

Við höfum verið best í heimi svo lengi, að Þorskurinn er bara að verða útdauður og einungis hræætur á borð við Ýsu lifa af á miðunum okkar, hver við höfum ,,varðveitt" og stundað umsjón og ábyrgðarfulla umsýslu með ,,sjálfbærum " miðum okkar.  --betur en nokkur önnur þjóð í heimi og Hannes talar sig eldrauðan í framan um efnið á erlendri grund.  --Líklega vegna þess, að ef hann færi nú að básúna þessi fræði sín og trúboð, hérlendis, hitti hann líklega fyrir einn og einn sjómann, sem hefði verið á umræddum miðum hér áður og fyrrmeir, þegar ,,kerfið" var ekki til.

 

Guð sér um, að líklega dagar að nýju og fuglarnir fái sitt--- en Spinndoktorarnir munu þagna, líkt og svo margt annað sem við mennirnir erum uppteknir við, þá og þa´stundina.

Ég hlakka Vorsins, þegar ég fæ aftur tækifæri til, að ergja mig yfir mýflugunum sem ætla aldrei að láta mig í friði.

 

Guðslaun

Miðbæjaríhaldið


Hverju svarið þið samvisku ykkar?

Var að velta því fyrir mér, að við sem höfum sterkar skoðanir á hlutunum, stöndum frammi fyrir samviskunni, í formi barna okkar, barnabarna eða annars eftir atvikum og viðkomandi spyr mann í einlægni, hvort það sem við segjum vera skoðun okkar, geti staðist skoðun og hvort líkur seú á, að upptaka þeirra í praxís, væri líklegt til árangurs.

Tökum dæmi:

Unglingur spyr foreldra sína sem eiga böns af Kvóta, hvort þetta sé réttlátt kerfi, hvar afinn vátti fyrirtækið, sem átti bátinn í þorpinu og fólkið, sem reri á bátunum og verkuðu fiskinn fengu engan kvóta?

Hverju svara freldrarnir og eru þeir s´ttir við sjálfa sig í svarinu?

Hvað með rödd samviskunar?

Þegar líbreal foreldarar eru spurðir af sínum börnum, hvort alltir séu í raun jafnir og fjölþjóðlegt samfélag geti þrifist hér, eitthvað frekar en annarstaðar í áfunni?  Svarið er auðvitað eitthvað svona  ,,Auðvitað barnið gott, við verðum að vera opin og leyfa straumum annarstaðar frá að leika um þjóðfélag okkar".

Meina þau það virkilega eða er þetta lærð viðbrögð?

Hvað með samviskuna, þegar horft er til þjóðfélaga á borð við Svíþjóð og Danmörkiu, hvað ljúfustu þjóðir sem þekkjast á jarðkringlunni en eru að heikjast á fjölþjóðlega draumnum.

Mamma, hvar eru alþjóðahúsin hérna? spurði Drengurinn móður sína í heimsborginni París.

Hvernig er samviska verðbréfamiðlara, þegar hann hefur ,,reddað" kunningja sínum um, að losa hann við, hluti sem hann þurfti að losna við og síðar koma íljós, að viðkomandi var í færum til að vita, að bréfið væru of hátt metin?

 

Hver dæmi sjálfan sig -----og láti samviskuna ráða.

Ekki er til gleggri dómari og óvægnari, þeim sem eru búnir slíku og óslæfðu.

Miðbæjaríhaldið,

Býður góða nótt og óskar öllum góðra draumfara og að þeir leggi höfuð að kodda með hreina og fínpóleraða samvisku.


Hver sá er saklaus er, kasti.....

Núna er mikið gjörningaveður í pólitíkinni í henni Reykjavík.

Skýrsla er birt og í henni ekkert nýtt, nema nú þora menn að nefna FL grúppuna á nafn og þá sem voru hvatamenn ,,samrunaferlinu" og þeim böggum sem fylgja áttu skammrifum.

Settur var nokkurskonar ,,Rannsóknardómur" sem nú á ekki að dæma einstaklinga, bara benda á hverjir voru ekki þóknanlegir dómnum,--sorry,--stýrihópnum.

Allir benda núna á Vilhjálm og jafnvel Mogginn minn er að senda tóninn að honum, eða ræður Staksteinaritari sér ekki af hrifningu yfir Hönnu Birnu og hennar afrekum á hinum pólitíska vettvangi??? 

Hvernig stóð á því, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn þáðu boð um setu í þessu leikhúsi?  Hví varð niðurstaðan sú, að þau tvö, sem skrópuðu á Aðalfundi Varðar en komu á opna fundin, hönd í hönd, sem nýtrúlofað par, haldandi ,,leiðtogaræður" --létu espa sig í setu í þessari farsakenndu nefnd/stýrihóp/rannsóknardómi???

Allt er þetta afar gegnsætt og auðskilið.  Plott í pólitík og ekkert annað.  Ekki er fyrir að fara sérlegri ást á ..almannaeigu" í sumum tillögum Hönnu og félaga á öðrum stöðum í pólitíkinni.

Hlutur annarra forystumanna Flokksins er hinsvegar athygliverðari.  Hvernig má það vera, að sumir frammámenn Flokksins hafa svona lekið einu og öðru í menn, svona í forbifarten?

Nú er tími til að hætta og slá af allar hnífstungu pólitík.  Látum vinstra liðið sjá um þann part.  Menn á borð við Stefán Jón og fl. þekkja hvað ég meina.

Sýnum að við erum fylgjendur fornra gilda um höfðingsskap, einurð, drengsskap og sannleiksást.

Miðbæjaríhaldið

Þjóðernissinnaður íhaldsmaður


Hvernig má það vera, að hann tali svona, fyrrverandi borgarstjóri.

 

Nú fellur mér allur ketill í eld.  Kann Dagur ekki neitt í Sveitastjórnarlögunum? 

Það er ótvíræð krafa lagana að kjörnir fulltrúar, stjórni sínu sveitafélagi hvað sem tautar og raular.

ÞAð er ekki neitt í lögunum, sem heimilar nýjar kosningar til sveitastjórna.

Er þetta bara áróður og skuspilleri, sem virðist vera sérlegt kennimark málflutnings þessa manns?

 

Fréttamenn ættu að skoða hversu ,,hæfur" Dagur er, til setu í Borgarstjórn, ef þetta er summa af hans þekkingu á Sveitastjórnarlögunum.

 

Auðvitað veit hann betur en hann var að tala til skrílsins á pöllunum á málfari, sem þau gætu skilið.

Aumkvunarvert og ekki til eftirbreytni.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Dagur: Í dag ætti að kjósa í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband