Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Enn um svonefndann Miðbæjarvanda.

Var á umræddum fundi og fylgdist vel með framsöguerindum.  Því miður varð ekki um auglýstar pallborðsumræður en samt var betur farið en heima setið.

 Aðalinntak þess, sem þau höfðu fram að færa, sem til máls tóku eftir að Borgarstjóri og Lögreglustjóri höfðu reyfað sín mál, var nánast það sama.

Öll nálguðust þau málið frá ólíkum hliðum en niðurstaðan varð giska áþekk.  Semsagt, að hér væri um val að ræða.  Val á milli tvennskonar þróun.  Annarsvegar áframhaldandi hnignum og ótndi fyrir íbúa Rvíkur og nágrennis alla og hinnsvegar endurheimt og endurlífgun þessa svæðis, sem allir kváðu vera sammála um, að ætti að vera svona í þokkalegu lagi.

Fríða Björk Ingvarsdóttir agði frá ferðum sínum um nokkrar borgir, hvar hún hitti mannaval mikið.  Allir þekktu til Rvíkur og landsins sem væri orðlagt fyrir náttúrufegurð og sérstæða menningu.  Viðmælendur hennar í LA vildu aftur á móti ekki koma hingað, þar sem borgin við sundin hefði miður góða rikt af sér og væri kynnt sem partíborg, hvar Víkingar kneyfuðu ölið fram á rauðan morgun í skammdeginu og drykkju full hvers annars sumarlangar nætur.  Konurnar kváðu vera mjög svio lausgirtar og karlarnir djarftækir til kvenna.  SVona lifnaður hentaði þessum efnuðu mönnum ekki, heldur vildu þeri heimsækja lönd, hvar menningin væri öðruvísi og ekki svona drukkmiðuð.

Sama sagan var í Loundúnum, hvar hún hitti viðskiptamenn,sem merkilegt nokk, þurftu nokkuð hingað að sækja og voru því alltíðir gestir hér.  ÞEir skilduu bara ekki, hvernig okkur dytti í hug, að leyfa svona lifnað í Miðborg Höfuðstaðra landsins, rétt við Þinghúið og einmitt á þeim stöðum, sem ættu að vera sérlega vernduð fyrir einmitt svona lifnaði.  Tóku sérstaklega fram, að bretar myndu ekki líða svona lagað í sinni mMiðborg og þar væru allir samstíga, Borgaryfirvöld, þjóðþingið og íbúar.  Sömu viðmælendur hennar töldu að auglýsingarherferð Flugleiða um ,,dirty weekend" hefði unnið afar mikil spjöll á orðspori borgarinnar og voru þess vissir, að mjög langan tíma tæki að snúa þeirri ímynd við í hugum væntanlegra ferðamenna.

Svo kom að mínu mati rúsínan í pylsuendanum.  Allir luku upp einum munni um, að þeir skyldu allsekki af hverju við SELDUM LANDIÐ SVONA ÓDÝRT!!!!

Sigmundur D. Gunnlaugssson doktorsnemi í borgarskipulagi og hagfræði hélt afar athyglisverða tölu um hvað skapaði borgum forskot í samkeppninni um ímynd og hvernig borgir geta glutrað möguleikum sínum gersamlega niður.

Hér voru samspil skipulagsmála, virðingar fyrir upprunanum og umgengni um borgarhlutana.  Sammerkt var öllum þeim,s em best standa, að þar eru afar strangar reglur um þjónustutíma og umgengni, mikið framboð af menntun og menningartengdri afþreyingu.  Og að UMFERÐAMANNVIRKI væru EKKI yfirgnæfandi í eða við Miðborgirnar.  Hver var að tala um Flugvöllinn??

Við þetta er svo að bæta því, að þessi stóri hópur fólks, sem gaf sér tíma til, nánast á matmálstíma, að mæta á fundinn, íbúar Miðborgarinnar sem og aðrir íbúar Rvíkur og nágrennis (þekkti fólk þarna sem búa langt frá Miðborginni) virtust á einu máli um, ef marka má lófatak og undirtektir aðrar, að þjónustutímann bæri að stytta til muna og samræmis við erlendar borgir, hvar málin eru í góðu lagi.

Einnig vildi ég koma því svona að, í forbifarten, að ef OPINBERIR AÐILAR VIRÐA EKKI GERÐA SAMNINGA VIÐ BORGARYFIRVÖLD er ekki svosem ofætlan, að telja veitingamenn eitthvað léttari í taumi.  Flugstoðir og Flugmálayfirvöld gerðu samning við borgaryfirvöld um flughreyfingar á Rvíkurflugvelli, EKKERT AF ÞVÍ SEM ÞAR ER RITAÐ ER VIRT, FREKAR EN HVERT ANNAÐ PRUMP Í HROSSI Á VORDEGI.  Lendingar og flugtök eru að geðþótta þeirra sem telja sig geta ráðið hvenær flogið er og hvenær lent er, skítt með alla samninga og reglur um Tollskoðun.

Með kurteisri kveðju, ekki háværri

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Afgreiðslutími verði tekinn til umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona svona, eru menn í fýlu?

Þessi frétt minnir mjög á lítil börn, sem ekki fá það sem hugurinn girnist það og það skiptið.

Af því að ég má ekki þetta þá bara.......

 

Auðvitað er hér um grófa tilraun til þess, að auka mjög pólitískan þrýting á þingmenn kjördæmisins, sem síðan eiga að spegla þeim þrýsting lóðbeint á borgarfulltrúa sinna flokka.

 

ÞEtta er allt þekkt og kunnuglegt ú r aðferðum í skylmingunum um péning. 

ÞAr sem þeir ekki fengu að breyta notkunarskilyrðunum, urðu lóðirnar miklu mun verðminna og fúlgur fjár ,,glötuðust" í hugum stjórnenda Granda. 

Það er bara einn hængur á þeirri röksemdafærslu.------Þessir skilmálar VORU í gildi og ERU í gildi, þannig að EKKERT TAPAÐIST, þar sem EKKKERT HAFÐI BREYSTST. 

 

Þetta skilja ekki allir og er það mjög svo miður.

 

Tímasetnign tilkynningarinnar er einnig mjög svo vel valin.  RÉTT EFTIR AÐ RÍKISSTJÓRNIN BIRTI ,,MÓTVÆGISTILLÖGUR " SÍNAR!!!!!

Þetta hrópar auðvitað á mann og sést hér, að þá sem langar mikið í aura, sem ,,verða til" við opinberar ákvarðanir, skirrast ekki við, að brúka óánægju í öðrum héruðum, sér til framdráttar.

 

Nú ríður á, að borgarfulltrúar, láti eki snúa sér.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Stjórn HB Granda hættir við byggingu nýs fiskiðjuvers á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Borgaryfirvöld veifaskjattar?

Þegar samið var um Flugvallarlagningu í Vatnsmýrinni, það er svonefnda ,,endurbyggingu", var samið um tiltekin mál, vellinum tengdum og umferð um hann.  Allt var þetta gert til að íbúar í nágrenni hans væru frekar sáttir en sárir.

Helstu efnisatriði þessa samnings voru nokkuð ljós og forsendur leyfisins, nokkuð skýr.

 

Nú er svo og alþekkt, í samskiptum manna og félaga þeirra, að eftirfylgni með samningum er mál beggja og tilraunir til brota á svoleiðis nokkru, í réttu samhengi við virðingu fyrir mótaðilanum, hverju sinni.  Sumsé, menn brjóta ekki samninga um leyfi, svo viðkvæmir sem þeir í eðli sínu eru, nema ef þeir telja sig komast upp með það.  Virðing fyrir samningsaðilum er því lykilatriði.

Ef einhver telur sig eiga í fullu tré við einhvern og þurfi ekkert að óttast, eru minni líkur til, að farið sé að efnisatriðum samningsins. 

Sumsé, ef veifaskjattar eru eftirlitsaðilar og samningsaðilar, eru líkurnar minni um uppfyllingu samningsatriða.

Samgönguráðherra og Flugmálayfirvöld skrifuðu undir samning um, að ekki skyldu leyfðar ,,flughreyfingar" eftir tiltekin tíma eða fyrir viðmiðunartíma, breytilegt eftir vikudögum þó, helgar nokkuð helgari en virkir.

Ekki skyldu leyfð flugtök eftir kl 22,00 og lendingar eftir 23,30, nema í algerum neyðartilfellum.

Ekki skyldi leyfðar æfingar í akróbatikk í lofti á ,,flugvallarsviði" .

Snertilendingar færðar annað.

Ekkert af ofangreindu er haldið.

Þotur taka af og lenda á öllum tímum sólarhringsins.  Misháværar en fyrir íbúa er þetta gersamlega óþolandi.  Ung börn vakna og ef foreldrarnir vakna ekki við hávaðann, vakna þau við grát barna sinna.

Síðan þegar eftir er gengið, hvað sé í gildi, fær maður ekkert nema hofmóð og útúrsnúninga.

Ég bý við Sóleyjargötu og hef búið þar með hléum, síðan 1963.  Ég hef ekki í annan tíma orðið fyrir meiri ónæði af notkun flugvallarins.  Þrátt fyrir, að nú fari nánast allt millilandaflug fram frá Keflavík.  Hef jafnvel sett sérstaklega hljóðeinangrandi gler í alla glugga íbúðarinnar.  Ekkert dugir, ónæðið er meira.

Svo er annar flötur á þessu.

Hvernig má það vera, að Flugumferðastjórar hjá Flugstoðum, veiti flugförum sem koma beint frá útlöndum, lendingarheimild, ÞÓ SVO AÐ EKKI SÉU TOLLÞJÓNAR Á VAKT?  Það er ekki gert, ef farið væri að starfsreglum bæði um tollskoðun og flugumferðastjórn.  í AIP reglum er það tekkið fram, að beina skuli ÖLLUM flugförum, sem koma utanlands frá, á næstu flughöfn, sem hafi tollafgreiðslu.

Ég spurðist fyrir um þetta en uppskar ekkert nema hroka og útúrsnúninga. 

Því tók ég mig til og fékk vini mína í lið með mér og við fórum að Loftleiðahótelinu, strax eftir að þotur lentu tvær sumarbjartar nætur um helgar í sumar.  Þar sem ég bý nánast við brautarendann, er kippkorn að hótelinu og greið leið, þegar ekki er mikil umferð um Hringbrautina.  Við komum í ÖLLUM tilfellum að ,,ranmpnum" þar sem þessar þotur eru með aðstöðu við Loftleiðahótelið og byggingu, sem ætluð er til að Tollþjónar hafi aðstöðu í, nokkru áður en viðkomandi þotur ,,töxuðu" að rampnum. 

Lengsti tími, frá að vélarnar stöðvuðust og þar til að farþegarnir voru komnir út í bílana þarna á stæðinu, voru um 10 mín.  Ég get auðvitað ekkert fullyrt um skoðun farangurs eða véla en helvíti eru tollararnir handfljótir ef þetta er nægur tími.

 

Semsagt.  Borgaryfirvöld eru ekki mikil ,,ógn" við Flugstoðir og eftirlitsaðilar um tollskoðun og þessháttar eru ekki mikið að spekúlera í reglum ef þetta má líðast til lengdar.

Svo annað.

Um tiltekna stærð af byggingu var samið en nú vilja menn stækka Samgöngumiðstöðina verulega og telja sjálfgefið, að verið verði við kröfum þar um.

 

NIÐURSTAÐA ALLS ÞESSA ER, AÐ MENN LÍTA Á BORGARYFIRVÖLD, SEM VEIFASKJATTA, SEM EKKERT TILLIT ÞURFI AÐ TAKA TIL. 

SKRIFA UNDIR OG FAR SVO FRAM AÐ HENTUGLEIKUM OG VILD.

 

Svona gera menn ekki eða hvað?

 

Miðbæjaríhaldið


Er með böggum Hildar.

 

Er ekki alveg búin að ná mér ennþá.

Var kallaður ,,vinstri maður" af einum ofurfrjálshyggjumanninum he´r á blogginu og svo, til að bæta gráu á svart, var einn kommentantinn, á bloggi Össurar Skarphéðins, svo óforskammaður, að kalla mig nánast,-------FramsóknarmannBlushSick.

Allt þetta, vegna þess,a ð ég hef verið að yppa þeim bjargföstu og marg marg endurteknu stefnumiðum Sjálfstæðisflokkins, að þjóðin skuli hafa ævarandi yfirráð á auðlindum sínum, hverju nafni sem þær heita.

Ég sem var í hópi þeirra, sem kallaðir voru ,,stuttbuxnadrengir" í Heimdalli.  Tók á mig margskonar svívirðingar,--af pólitískum andstæðingum Flokksins,--- en þarf nú að sæta ákúrum frá þeim, sem svona daglig dags, nefna sig Sjálfstæðismenn.

Hvað ætli Geir Hallgrímsson og fleirri fyrrum frammámenn Flokksins segi, þegar ég er nefndur ,,vinstrimaður" og ekki nóg með það, heldur FramsóknarmaðurSickW00t.  Svarinn andstæðingur Samvinnufélaga, sem stálu eigum sinna ,,félagsmanna" og stundum með aðstoð löggjafans. 

Semsagt, allt er í heiminum hverfullt.

 

Miðbæjaríhaldið

 

 


Spurning um fullveldisrétt Íslands á sínum auðlindum.

Hér er á ferðinni hvortveggja, ánægjulegar fréttir, vegna áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum fyritækjum en hinnsvegar einnig verulega varhugaverð þróun, þar sem ekki er lögfræðileg fullvissa um fullveldisrétt og þannig einskonar eignarrétt þjóðarinnar á auðlindum okkar.

 

Þetta er ein meginástæða þess, að Kvótaeign hefur staðið í okkur hvað varðar inngöngu í Evrópusambandið.  Hér er hliðstæð hætta á ferðinni. 

Alþingi VERÐUR að afgreiða með hraði löggjöf, sem tekur af ÖLL TVÍMÆLI um, að þjóðin sé ,,eigandi" allra auðlinda landsins bæði til lands og sjóvar.

Ég treysti okkar fólki vel til að sammælast um svona grundvallar atriði.  Hér liggur mikið við oghugsanlega framtíðar velferð afkomenda okkar, sem nú erum á dögum.

Það getur ekki verið eftirmæli sem við viljum, að verði höfð um okkar kynslóðir, að við hefðum forklúðrað þessum málum svo kyrfilega, að ekki verði aftur snúið og gróðapungar erlendir geti setið yfir hausamótum afkomenda okkar, sakir græðgi okkar í stundlegan gróða.

Miðbæjaríhaldið

 


mbl.is Goldman Sachs að kaupa hlut í Geysi Green?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ung kona þögguð?

Var að hugsa um, hve lítið er fjallað um sýn hinnar ungu sómölsku konu á ofur umburðalyndi Vesturlanda á hinum ,,menningartengdu" glæpum og hve yfirborðsleg rósemi vegna niðurbrota á gildum jafnræðis, jafnvel með forgangi, eru hættuleg iðja.

 

Hversvegna ætlli þetta sé?

Ekki PC að taka afstöðu í þessu máli?

Hættulegt fyrir ,,jákvæða" mismunun að velta svonalöguðu fyrir sér.

Er ósnertanleg umræða, að tala um að eitthvað sé ,,betra" en annað, bæði í hegðan og menningu?

Gæti þetta átt við um fleirri svið manleg?

Hafa menn þor til að skoða þetta niður í kjölinn án fyrifram gefinna niðurstaðna?

Fyrirfram gefin niðurstaða er ekki vísindaleg og nefni ég svoleiðis yfirleitt fordóma.  Semsagt, búið er að dæma niðurstöðuna fyrirfram.

 

Svo er auðvitað,, að við búum í mannheimum, hvar hver dæmir sig ljúfar en aðra.

Miðbæjaríhaldið

 

 


Vestfirðingar huga að sjálfstæðisyfirlýsingu.

Samkvæmt frétt á Eyjunni, virðist evera lífsmark með sumum á vestfjörðum. 

Tillaga kom fram um, að Vestfirðir yrðu nánast lýstir sjálfstæðir.

 

ÞEtta vildi ég mjög á þeim tímum, sem ég bjó vestra.  ÞAð er með hreinum eindæmum, hvernig búið er að fara með þennann landshluta í gegnum árin.

Afskiptir í samgöngumálum sem öðru.  Kvótakerfið gekk mjög nærri byggðunum með hverri bommertunni af annarri.

 Þorskurinn ,,jafnaður" milli svæða og svo Grálúðan.  Steinbítur og hvaðeina, sem var nánast bundið við skipin að Vestan. 

ÞEtta allt saman jafnað út en Síld og Loðnu kyrfilega haldið utan við ,,jöfnuð"

 

Áfram mínir frændur!!!!!!

 

Miðbæjaríhaldið

fyrrum Vestfjarðaríhald


Af hverju trúir maður þessu ekki alveg?

Það er svona einhver efi, sem tekur sér bólfestu í huganum, þegar fréttir af breytingum á rekstrarformi Samvinnufélaga eru tilkynnt.  Af hverju það er, veit maður auðvitað ekki fyrir víst en efinn er til staðar og heilinn tekur minna og minna trúanlegt, sem úr þessum herbúðum kemur.

ESSO

Samskip

KEA

SÍS sjálfur

Og svo hellast yfir mann sitthverjar pælingar um slit hinna ýmsu Kaupfélaga, sem auðvitað áttu sinn hlut í sjóðum SÍS.  Ekkert fékkst upp í kröfur þegar eftir var leitað hjá lánadrottnum þeirra.  Eigur sumra Kaupfélaga fóru svona út um borg og bí, að mati margra.

Samt eru forsvarsmenn ýmissa Samvinnufélaga og félaga þeim tengdum, multi-millar í dag, þó svo þeir hafi verið launþegar hjá þessum fyrirtækjum.  Furðulegt nokk.

 

Semsagt, hver á Brunabót?

 

Hver á aurana sem fóru í sjóði SÍS?

Hver fer með ráðstöfun fjárins?

 

Spurningarnar eru fjölmargar og sumar snúast nú um ,,eign" Kaupfélagana í hinum aðskiljanlegu Sparisjóðum út um allt land.  Það kvað vera góð eign í þeim bréfum.

Þetta eru svona pælingar út í loftið.  Ekki svo að skilja, að ég öfundi neinn af auð þeim sem til er komin af ráðdeildarsemi og þvíumlíku, nei öðru nær en sem svona sléttur brauðstritari, væri ögn þægilegra að sjá, að sömu reglur giltu um þau pund, sem hið opinbera gerir þeim að greiða í skatt og þessi óvera, sem frá mér kemur til sameiginlegra þarfa þjóðarinnar.

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Frestur vegna vafa um hlutafjáreign í Samvinnutryggingum rennur út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var svona að velta einu fyrir mér, sko.

Ekki alls fyrir löngu komu hingað menn frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum og höfðu allt á hornum sér með Íbúðalánasjóð.  Töldu fyrirbærið tilræði við peningastefnu ríkisstjórnarinnar.  Stórhættulega menn, sem leiddu ekkert yfir þjóðina anað en verðbólgu og ósvinnu, allt vegna þess, að þeir lánuðu péning í íbúðarhúsnæði úti á landi og jafnvel stóran hluta af kaupverði.

Þjóðarnauðsyn væri að leggja hann niður sem fyrst og leyfa hinum algóða ,,Markaði" að blása út skítalyktinni þaðan.  Afhenda bönkunum alla lánastarfsemi, þar sem þar væru sko fagmenn í lánveitingum og vissu miklu miklu betur hvert ætti að lána péning.  Þar ríki blóðug samkeppni um kúnnann og ekkert gefið eftir í þeim efnum, þó svo að sömu menn skýri það svo ekkert nánar fyrir okkur pupulnum, þetta með sömu yfirdráttarg FIT kostnað (færslulisti innistæðulausra TÉKKA!!!) OG ÖNNUR ,,Þjónustugjöld, svosem notkun Netbanka, hvar viðskipta ,,vinurinn" með áherslu á ,,vinurinn", vinnur alla vinnuna í millifærslunum en fær samt gjaldfærslu (afar svipaða hjá öllum bönkunum) fyrir að fá að vinna vinnu bankamannsins.  Sniðugt,---- hvernig get ég komist í þá aðstöðu, að láta einhvern vinna vinnu fyrir mig og rukka hann svo fyrir stuðið?

Skyldu þessir sömu menn ekki vera á handahlaupum til Búsksins í Hvíta húsinu?  Karlinn er ekki með öllum mjalla, ætlar að stofna viðlíka húsnæðisbanka í henni Ameríku, hvar okkar businessmenn líta til sem fyrirmyndarríkis. 

Nú ríður á, að þeir hjá Alþjóðagjaldeyrissjónum, bregðist nú fljótt við og leiðbeini yfirvöldum í BNA.  Annars verður illt í efni hér, því eins og áður fær íslenskt hagkerfi lungnabólgu, þegar kerfið á Wall S fær kvefpest.

 Þetta er bráðfyndið, að sömu jakkalakkarnir, sem tala með alvarlegu augunum um leiðbeiningar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, skulu einni g lýsa yfir mikilli gleði og ánægju yfir því, að Búsk stjórnin skuli vera að setja péning í að redda bönkunum fyrir horn vegna lítt tryggðra útlána og að sömu yfirvöld skuli nú ætla að stofna björgunarsveitarbanka fyrir einmitt húsnæðislánin og hyggjast jafnvel taka upp lánveitingar til þeirra sem minna eiga undir sér svona í peningalegu tilliti.

 Hvernig er með virðingu þessara manna við minni og skilning almennings?  Halda þessir jakkaklæddu menn virkilega, að almenningur sé svona skini skroppinn?   Svo kemur þetta lið aftur og aftur fram í sjónvarpi, -báðum stöðvum sem eru með fréttir,--og skamma Litla Jón og Litlu Gunnu fyrir óráðsíu og fjárfestingafyllerí.

Litla Gunna fær engu og ég endurtek ENGU UM ÞAÐ RÁÐIÐ hvaða vextir eru reiknaðir af skuldum hennar við bankana, þeir eru nánast allir breytilegir og á settir að geðþótta hins samningsaðilans.

Svo belgja þessir menn sig út og hefja upp raust sína um lélegar áætlanir og greiningu óáfallinna vaxta.  Síðan er giggið toppað með því, að senda rukkunina í Lögfræðiinnheimtu hjá ,,firma úti í bæ" sem síðan bætir nú í  og leggur verulegan kostnað aukreitis á Litlu Gunnu.  Það gæti verið til þess, að henni reyndist auðveldara að standa nú í skilum við bankann sinn, að öðrum kosti, bjóða allt upp ofanaf henni og selja öðrum. 

 Auðvitað eru mál, sem enda með lögtökum og uppboðum EN það er alger óþarfi hjá bönkum og svoleiðis kerfum, að leita út fyrir fyrirtækið til að hækka kröfurnar, nóg eru oftast vandræðin fyrir.

 

Með von um, að Búsknum verði leiðbeint um góða siðu í þessum péningamálum af vinum okkar í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Þar eru sko fagmenn að verki.

 

Miðbæjaríhaldið


Misskipt er nú gæðunum.

Byr eykur hagnað sinn um einhver 500% en verktakastarfsemin skilar nánast engu, þrátt fyrir verkefnafjöld og bullandi umsvif.

Hvurnig má það vera, að svona sé í potta búið?

Bankar neita að geta tekna af seðilgjöldum.

Bankar hækka vexti og allskonar gjöld.

Verktakar súpa Dauðan úr skel.

 Brauðstritarar fá hnút í magann, þegar Pósturinn bankar á dyr með bréf frá einhverjum, sem vilja eiga við þá orð.

Svo hækka lánin vegna Verðtryggingar.

Svo hækkar Verðbótaþáttur, vegna þess, að íbúðarhúsnæði hækkar og allir sem selja hluti í húsbyggingar hækka sitt verð, þar sem allir vilja græða á hækkununum.

 

Semsagt, allt þetta ofurgróða-kerfi er borið uppi af brauðstriturunum, með einum eða öðrum hætti.

Ekki nema von, að sumir verði ríkari en aðrir, því eins og Orwell heitinn sagði, eru sumir jafnari en aðrir.

 

Miðbæjaríhaldið

Brauðstritari og faðir þriggja brauðstritara, hefur því áhyggjur af framtíð brauðstritara.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband