Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hér verða mínir menn að vanda sig.

Víst er, að Vilhjálmur mun ekki gnaga á bak orða sinna og einkavæða þetta fyrirtæki okkar, heldur mun það áfram vera í eigu íbúanna allra jafnt.

Í þessum efnum verða menn að vanda sig mjög.  Tískusveiflur í rekstri fyrirtækja sem eru í eðli sínu opinber, líkt og er með OR, mega ekki villa mönnum sýn í viðleitni til að vera ,,nútímalegur".

 

ÞEtta sést best í Evrópu, hvar allmörg fyrirtæki, sem voru í ,,komunal" rekstri, voru seld til einkareksturs eða einkaaðilum falin rekstur þeirra.  Nokkuð mikið hefur verið um, að þessi fyrirtæki hafa verið að fara í opinberan rekstur aftur, vegna þrýstings frá kjósendum, einhverra hluta vegna.  Það hefur reynst bæjar og fylkisstjórnum afar dýrt, að kaupa menn frá þessum fyrirtækjum, sem flest eru með mjög sterka stöðu í húsnæði sem er mjög sérhæft, svo sem skólar, sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og svo framvegis.

 

Hér verða menn að vanda sig afar vel, svo ekki illa fari og að orðheldni sé ekki dregin í efa.

 

Miðbæjaríhaldið.

 

Vill halda í það sem hald er í en breyta hinu


mbl.is Hlutafélagavæðing OR rædd á stjórnarfundi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er nauðsyn viðbragða í auðlindamálum.

Hef oft yppt þeirr skoðun minni, að mjög ríður á, að sett verði löggjöf, alþröng, um Fullveldisrétt þjóðarinnar á ÖLLUM auðlindum lands og sjóvar.

 

Hér dugir ekkert hálfkák, því mjög mun sótt að þessum auðlindum okkar í framtíðinni og nóg mun um menn, sem vilja fénýta þessi náttúruvé.

Mér liggur í léttu rúmi, hver virkjar auðlindirnar, eins lengi og eignarhald á uppsprettunum er óumdeilanlega í eigu þjóðarinnar.  Síðan er það úrvinnsluatriði, hvort afgjald sé tekið og þá hve hátt það skuli vera á hverjum tíma.

Ef félög eða einstaklingar geta eignsat auðlindirnar, er jafnvíst, að einhverntíma kemur upp sú staða, að útlendir vilji eignast og auðvitað mun  einhver ,,eigandi" ekki geta staðist þá freisstingu, sem aurinn er mörgum.

Óbornar kynslóðir íslendinga VERÐUR að eiga sinn fullveldisrétt hér og er það okkar heilög skylda að búa svo um hnúta, að ekki rakni í þessum efnum.

 

Íslandi allt

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Jákvæð niðurstaða úr borun á Þeistareykjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er hin áleitna spurning...................

Hvenær verður mannréttindi eins, að mannréttindabroti gagnvart öðrum??????

 

Eru það mannréttindi tiltekins hóps, að skemma og sóða út umhverfi sitt?

 

Hver eru mannréttindi þeirra sem eiga hlutina, svo sem bílana, húsin og þessháttar?

 

Er hér einhver samsvörun við Miðbæjarvanda okkar?----Hvar á að reisa þann múr?

Svo eru aðrir hópar en Sígaunar, sem hafa svona og svona orð á sér vegna úmgengni og þessháttar.  Það er annað mál og miklu viðkvæmara.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Vilja einangra sígauna með aðskilnaðarmúr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðbærinn er ekki vænn lengur.

Það sæmir mér ekki sem Miðbæjaríhaldi, að láta óbloggað um einmitt Miðbæinn.

Úr því verður nú bætt og vona ég að öngvir firrtist við mínum orðum, þar sem ég er maður sátta og þægilegheita.

 

Ég hef búið í miðbænum, með 16 ára hléi þó, síðan 1963.  Liðið vel og unað hag mínum hið besta, hvað flestu viðvíkur.

Á unglingsárunum, urðu ferðirnar nokkrar eftir Fjólugötunni og niður í Glaumbæ.  Þar voru menn í biðröðum, mis lengi.  Að vísu átti ég annarra kosta, sakir vinskapar bróður míns við húsráðendur.  Í þessum biðröðum urðu afar sjaldan háreisti og læti, því þa´komu verðir lagana og fjarlægðu rustamennin eða setluðu misklíðina, með lempni og elskulegheitum.  Stundum þurfti að taka nokkuð á því en það voru þeir fullfærir um og notuðu ekki úðabrúsa sér til halds og trausts.  Í liðnu voru rammir menn afli en mestu ljúflingar svona inn við beinið og leituðust við, að meiða öngvann, heldur hafa undir og koma á viðkomandi járnum ef með þurfti til burtflutnings.

Svo brann Glaumurinn og hópurinn deyfðist nokkuð, bæði inn í Klúbb og í Sigtún. 

Síðar aflagðist nánast alveg klúbbarekstur í Miðbænum og allt varð rólegt eftir miðnætti þegar gestir Borgarinnar fóru að teyja sig til heimferðar og þeir sem verið höfðu í Þjóðleikhúskjallaranum. Á þessum árum var öruggt fyrir hvurn sem var, að spássera um stræti Miðborgarinnar á hvaða tíma sem var.

Svo kom Bjórlíkið og menn opnuðu dansstað við Austurvöll.  Þá byrjaði ballið, opið var til kl 03 eftir miðnætti á laugardögum.  Svo kom Ölið og Pöbbarnir og allir vildu fá að hafa opið til kl 03 eða lengur.  Algert Kaos varð kl 03 til 05 á morgnana.

Þáverandi yfirvöld borgarinnar ákvað að gefa eftir og leyfa lengri þjónustutíma.  Menn gengu á lagið og opnuðu enn fleiri búllur og þessi sóðamennska, sem nú blasir við varð að reglu frekar en undantekningu og varla fréttnæmt.  Undanlátsemin  (tilraunin) gersamlega mistókst og allt er í fullkomnu basli hjá öllum þarna.  Íbúar flýja um helgar, gestir hneykslast og spyrja íslenska vini sína, hvort það gæti verið virkilegt, að Rauða hverfið í Rvík, sé í kringum Alþingi og Stjórnarráðið.

Ef frómt ætti frá að segja við þessa útlendu gesti, væri rétt og satt, að segja, að þetta sé svo og einni helstu aðsetur stjórnsýslunnar og höfuðstöðvar Borgaryfirvalda Ráðhúsið sé þarna líka.

Þetta skilja útlendir ekki, sérstaklega Kaninn.  hjá þeim er allt svoleiðis bannað í löngum radíus frá Capitol Hill og raunar einnig víðast hvar í Fylkjum Bandaríkjanna.  Allt lokað fyrir kl 2200 í nágrenni við þá staði SEM ÞEIR ÁKVEÐA AÐ BERA SKULI VIRÐINGU FYRIR. 

Annað.  ESSO var með afgreiðslu niðri við höfn.  Sú afgreiðsla lokaði um kl 2200 til 2300 og ekki var önnur starfsemi en þjónusta við bíla og jú, gotterí og pylsusala.  Þeir þurftu að flytja sig um set og fengu lóð hjá R-listanum við enda flugbrautarinnar og Hljómskálagarðsins.  Okkur íbúum var sagt, að þar færi fram sambærileg starfssemi, þar sem ekki hefði verið hægt að rýra aðstöðu ESSO í Miðborginni.  Svo opnuðu herlegheitin og vitir menn,  opið allan sólarhringinn með brasseríi og öllu tilheyrandi.  Uppúr pottunum (alltof gömul feiti og viðbrennd) kemur leiðigjörn lykt, sem leggur yfir íbúðabyggðina þarna og lokkar og laðar að sér svangt fólk, misjafnlega á sig komið eftir tildragelsi næturinnar með tilheyrandi háreysti á leið þeirra eftir Sóleyjagötunni frá Næturklúbbunum að matsölunni hjá ESSO (nú N1).

Lausn mín á þessu vandamáli er sára einföld, tökum upp háttu frelsisunnandi Frjálshyggjumannanna í BNA og setjum strangar reglur um þjónustutíma í og við Miðborgina, látum loka allri veitingasölu á okkar Capitol- Kvos í síðasta lagi kl 2400.  Setjum fíleflda lögreglumenn, geðgóða og hupplega, líkt og á mínum sokkabandsárum, þangað niðureftir með fyrirmæli um, að líða engin lögbrot, heldur leiðrétta framferði borgaranna með festu og ljúfmennsku, líkt og áður var gert.

 

Miðbæjaríhaldið

Hlakkar til rólegra tíma í sínum ástkæra Miðbæ, með börn á göngu með foreldrum sínum við fóðrun á bra bra.


Það er nú það.

Mikið er ég feginn, að menn létu ekki setja sig upp við vegg, hvað verð á þessum lóðum viðkemur.  Borgin hefur ekkert með það að gera, að verða eigandi að þessum skika.  Það er annarra, að kaupa og byggja þarna en borgaryfirvalda að ákveða um leyfilega starfsemi í vverðandi byggingum.

 Með tilliti til umræðunnar um vanda Miðbæjarins er rétt að lýsa þeirri skoðun og óskum. að ekki verði enn einn klúbburinn eða búllan leyfð þarna.  Nóg er samt.

 

Miðbæjaríhaldið


mbl.is Reykjavíkurborg kaupir ekki Austurstræti 22
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjulegar fréttir af ,,Kapitalistunum i BNA"

Nú virðist Krónan vera að njóta aðgerða Seðlabanka BNA, eftir að þeir ,,gripu til aðgerða" vegna afhroðs banka í lánveitingu til ,,áhættusamra viðskiptavina".

SVoddan Kapitalismi ver nú kallaður  ,,pilsfaldakapitalismi" hér einusinni.  Seðlabnaki Bandaríkjanna eys úr skálum sínum inn á ,,markaðinn" til þess að lina þjáningar hans. 

Þarna kemur að því sem ég hef ekki enn fengið svar við.  Hvað gerist ef okkar bankar fara offari í útrás og útgáfu bréfa til dæmis ,,Jöklabréfa"?  Verður þá reikningurinn sendur okkur, venjulegum brauðstriturum?  Fara þá snillingarnir undir pilsfald mömmu ríkissjóðs og fa´að sjúga, líkt og Tilberar gerðu í Þjóðsöum okkar til forna?

Hverjum ber eftirlit og hvernig er unnt að framfylgja reglum á ,,markaði"?  Hver ber ábyrgð á, að vextir á húsnæðislánum með breytilegum vöxtum, þræltryggðum með Verðbótaþáttum og veðum að auki, hækki um nær helming á örfáum árum?

Ég ber sífellt minni og minni virðingu fyrir þessum snillingum öllum saman, sérstaklega þegar þeri hrósa aðgerðum Seðlabanka BNA fyrir ,,viðbrögð" viðbrögð, sem er ekkert annað en að lofa að láta almenning greiða fyrir klúður stjórnenda peningamyllana.

 

Miðbæjaríhaldið

 

Ekki skemmt þegar farið er í hans vasa að honum forspurðum.


mbl.is Áframhaldandi hækkun á gengi krónu og hlutabréfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættu nú að tala...................

Nægilega er um þessa framkvæmd rætt og nú er tími aðgerða.

 Bretta uppermarnar og hefja tvöföldun eða réttara sagt, halda áfram með tvöföldun.

Þannig er nefnilega, að þegar Geir Hallgrímsson var borgarstjóri, var sprengt haft re´tt við Hádegismóa, hvar Suðurlandsvegur raunar byrjar, hann lét auðvitað gera geilina tvöfalda en Vegagerðin kaus að nota eingöngu aðra akreinina og ehfur undirlag hinnar reinarinnar, blánað hvert sumar af Lúpínu síðan.  Forsjáll Geir.

 ÞEtta sýnir okkur sem búum í Rvík og nágrenni, að við verðum að fara að fá Samgönguráðuneytið.

 Umræðustjónmál og nefndarslímseta er úti líf liggur við, að hratt sé unnið og af framsýni.

 

Miðbæjaríhaldið

 


mbl.is Suðurlandsvegur verður tvöfaldaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir þurfa að eiga fyrir kaupgreiðslum blessaðir.

 Við þessu var nú að búast.  Bankarnir eru nú ekki nein gustukafyrirtæki, gera engum greiða, nema að fá fyrir það greitt.

Kaupgreiðslur bankana eru auðvitað mjög háar upphæðir og þeim nauðsyn, að mæta þeim með auknum tekjum.  Ekki fara þeir að lækka launakosnað sinn.

Mikið er ég þakklátur fyrir það, að Íbúðalánasjóður er enn til og ekki var farið að kröfum lukkuriddarana um, að leggja hann niður og leyfa bönkunum að fara að vild um þennann lánamarkað.

 Miðbæjaríhaldið


mbl.is Íbúðalánavextir hafa hækkað um 43%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um Miðborgarvandann

Hér á Bloggið, hefur verið skrifað margt spakviturlegt um umgengni og annað, bundið við skemmtanir okkar og gesta okkar í Miðborginni.

Skoðanir eru þónokkuð skiptar um aðgerðir, hverjar þær ættu að vera og raunar hvort nokkuð eigi að gera.  Menn skiptast nokkuð í tvennt, hverjum augum þeir líta Gullið.  Frelsisunnendur, (hélt lengi, að ég væri í þeirra hóp)  vilja sem minnst gera og láta þetta svona þróast af sjálfu sér.  Svosem ágætis skoðanir útaf fyrir sig en eru þær skynsamlegar?  Ef framhald verður á þessari tilraun, sem farið hefur fram hin síaðri ár, með þjónustutíma veitingastaða í Miðborginni og samþjöppun, mun ekkert annað gerast en, að vandinn eykst.  Það er nefnilega í eðli manna, að vilja fara að mörkunum.

 Frá mínum bæjardyrum séð, er hér um að ræða fásinnu.  Það líðst ekki í nokkurri Höfuðborg, að búllur þyrpist á lítið svæði í kringum Þjóðþinghús hvers lands.  Það yrði nú upplit á Kananum, ef menn færu að leyfa fyllerí og óskunda í næsta nágrenni Hvíta hússins og Þinghússins.  Þar er veitingar bannaðar eftir 22,00 með öllu.  Flestir veitingastaðir sem eru í nágrenni Capitol Hill, eru opnir til 21,00 og alls ekki liðið, að vín sjáist á mönnum þar í nágrenninu.

Þetta hjá okkur er ekkert annað en ómenning og á frekar samleið meðe hafnarbúllu-hverfum en miðstöð stjórnsýslunnar.

Auðvitað á að setja strangar reglur um þjónustutíma og umgegni þarna niðurfrá og FRAMFYLGJA ÞEIM með festu. 

Það er betra að ver'ða af heimsóknum nokkurra Túrista sakir minna næturlífs í Miðborginni en leyfa áframhaldandi hnignun og afsiðun þarna í næsta nágrenni Alþingis.

Nætur drollarar geta auðveldlega haldið áfram sinni drykkju í úthverfunum helst í Iiðnaðarhverfunum  hvar þeir eru fáum til ama og þar má auðvitað hafa jafn góða yfirsýn um hegðan þeirra af hálfu Lögreglu og væru þeir í Miðborginni.

Miðborgin á ekki að verða að slóðalegu Rauðljósahverfi, með næturklúbbum og búllum.

Frelsi eins má ekki verða helsi annars, svo er einnig með nætursvefn íbúa þarna og í næsta nágrenni okkar kæru Miðborgar.

Miðbæjaríhaldið

Ekki mikið fyrir boð og bönn en ástandið þarna er orði okkur til stórskammar og við orðnir að augabragði siðmenntaðra þjóða fyrir löngu.


Furðugrein um lögreglumál.

Þorvaldur Gylfason skrifar pistil í Fréttablaðið um löggæslumál í Miðbænum og víðar.  Vitnar í gagnmerka grein eftir Lögreglustjóra og reynir að draga ályktanir af henni og tölfræði þar fram setta.  Greinin er svosem ekki ólæsileg en svo kemur að rúsínunni í pylsuendanum, sem oftar.

Hann fær ekki bundist að setja hornin í Björn Bjarnason.  Hann virðist vera eins og Leirulækja-Fúsi, getur ekki klárað samsetningu greinar, frekar en Fúsi kviðlings, öðruvísi en haf í frammi fúkyrði eða klámyrði einhver. 

Síðan barnar hann greinina með algerlega furðulegum ,,tilvitnunum" í ,,ónefndan heimildamann" og ekki í fyrsta sinnið.  ÞEtta minnir mig á annað úr sögu okkar eða Gróu á Leiti.  Hún brúkaði ævinlega orðatiltækið sitt, sem löngu er orðið frægt,--,,ólygin sagði mér en hafðu það ekki eftir mér, heillin góð" ÞEtta gerði hún, þá lygasögurnar urðu hvað safaríkastar.

Semsagt, ég fer að verða hrifinn af Þorvaldi Gylfasyni,--hann er jú orðinn afar þjóðlegur í ritun sinni.

 

Miðbæjaríhaldið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband